BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Ágúst Orri til Malmö

02.03.2022 image

Enn einn ungi Blikinn er nú á leið í atvinnumennsku. Ágúst Orri Þorsteinsson, ungur og efnilegur sóknarsinnaður miðjumaður, hefur verið seldur til sænska stórliðsins Malmö.

Hann gerir þriggja ára samning við sænska liðið og hleypir strax heimdraganum.

Ágúst lék sinn fyrsta efstu deildar leik fyrir meistaraflokk Breiðabliks gegn Stjörnunni síðastliðið sumar.

Hann hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og hefur leikið 8 unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd.

Við óskum Ágústi til hamingju með samninginn og hlökkum til að fylgjast með þessum efnilega leikmanni halda áfram að þróa sinn leik í Svíaríki.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka