Á lokahóf meistaraflokka Breiðabliks 2026 í Smáranum á laugardagskvöld var Agla María valin besti leikmaður tímabilsins hjá meistaraflokki kvenna og Davíð Ingvars valinn bestur hjá meistarflokki karla. 

Líf Joostdóttir var valin efnilegust og Ásgeir Helgi Orrason efnilegastur.

Leikmaður leikmannanna var valin Karitas Tómasdóttir, þriðja árið í röð - og Kristófer Ingi Kristinsson hjá meistaraflokki karla.

Einnig kvöddum við Halla Björns sem lætur nú af störfum hjá félaginu eftir farsæl þrjú ár í þjálfarateymi karlaliðsins. Elísa Viðarsdóttir hlaut viðurkenningu eftir að hún tilkynnti að hún ætli nú að leggja skóna á hilluna. Félagið óskar Elísu innilega til hamingju með glæsilegan feril.

Að lokum voru þeir Kristinn Steindórsson og Kristinn Jónsson sérstaklega heiðraðir en þeir hafa einnig leikið sína seinustu leiki fyrir Breiðablik og óskum við þeim báðum góðs gengis í þeirra næstu verkefnum.