Blikar unnu 1:2 seiglusigur á Vestmannaeyingum í Bestu deild karla í gær. Leikurinn fer ekki sögubækurnar fyrir mikið skemmtanagildi en dýrmæt þrjú stig komu í hús á velli sem við höfum ekki alltaf riðið feitum hesti frá. Ferðamáti Blikaliðsins til og frá Eyjum gerði þennan leik hins vegar mjög eftirminnilegan því liðið flaug með þyrlu báðar leiðir vegna bágra ferðaskilyrða frá Landeyjarhöfn.
Það var eins og þyrflugið sæti eitthvað í Antoni Ara því hann skriplaði á skötu strax á upphafsmínútu leiksins. Heimapiltar þökkuðu pent fyrir sig og settu fyrsta mark leiksins. Þetta virtist slá Blikaliðið aðeins út af laginu og tók smá tíma að stilla kompásinn á nýjan leik. En smám saman náðum við tökum á spilinu og hófum að herja á ÍBV liðið líkt og Hund-Tyrkinn gerði á sínum tíma. Það skilaði sér í jöfnunarmarki á 21. mínútu þegar Davíð Ingvarsson átti snilldarfyrirgjöf á Kristófer Inga sem gerði engin mistök og stangaði knöttinn í netið. Þrátt fyrir að vera með knöttinn lungan úr hálfleiknum náðum við ekki að ógna marki heimamanna að neinu viti eftir þetta jöfnunarmark og því var staðan 1:1 í leikhléi.
Okkar piltar héldu áfram að halda vel í knöttinn í seinni hálfleik en spilið var frekar hægt og hugmyndasnautt fram á við. En það er samt ekki hægt að segja annað en við höfum nýtt okkar færi vel. Á 58. mínútu átti Anton Logi góða sendingu fyrir markið og þar skallaði Kristófer Ingi knöttinn til Viktors Karl. Hann gerði engin mistök og setti tuðruna í markið án þess að grandvaralausir varnarmenn ÍBV kæmu neinum vörnum við.
Við sigldum leiknum í höfn eftir þetta og gátu því okkar menn farið sigrihrósandi til baka með þyrlunni. Ekki fylgdi sögunni hvort Árni í Hraunkoti hefði verið flugmaður í ferðinni en Ármann Kr. Einarsson barnabókarhöfundur gerði Árna ódauðlegan í eftirminnilegum bókum sínum Undraflugvélin, Leitarflugið og Frækilegt sjúkraflug á sjötta áratug síðustu aldar. Þess má geta að Hraunkot er bóndabær á Suðurlandi og ekki skal rugla honum saman við golfskála og æfingasvæði Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.
Næsti leikur okkar pilta er gegn FH á Kópavogsvelli næstkomandi föstudagskvöld kl.19.15. Búið er að auglýsa mikið Hleragrill (Tailgate) á bílastæðinu við Fífuna fyrir leikinn. Það styttist í sveitarstjórnarkosningar og ekki ólíklegt að stjórnmálaflokkarnir fjölmenni til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. En leikurinn er aðalatriðið og þar ætla Blikar að fjölmenna!
Áfram Blikar, alltaf- alla leið
AP
Leikjaáfangi hjá okkar manni Aroni Bjarnasyni í leiknum gegn ÍBV í Eyjum