BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

50 ár frá vígsluleik Kópavogsvallar

07.06.2025 image
Mynd: Jón Gautur photography

50 ára afmæli Kópavogsvallar

Kópavogsvöllur hefur ríka sögu sem heimavöllur Breiðabliks og hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir íslenska knattspyrnu. Völlurinn var vígður fyrir 50 árum og hefur síðan verið vettvangur margra eftirminnilegra leikja. Í gegnum árin hefur völlurinn gengið í gegnum ýmsar endurbætur, þar á meðal lagningu gervigrass og uppsetningu flóðljósa til að uppfylla alþjóðlegar kröfur. Hann hefur verið vettvangur fyrir bæði knattspyrnu og frjálsar íþróttir, og er mikilvægur hluti af íþróttamenningu Kópavogs. Völlurinn rúmar liðlega 3000 áhorfendur, þar af 1.700 sæti í tveimur stúkum. 

Það það rignir afmælum í Kópavogi

Breiðablik, stofnað 12. febrúar 1950, á 75 ára afmæli á þessu ári. Kópavogsbær á 70 ára afmæli. HK á 55 ára afmæli. Kópavogsvöllur á 50 ára afmæli í dag, 7. júní 2025. Og vallarstjóri Kópavogsvallar, Ómar Stefánsson, á 25 ára starfsafmæli á árinu. Forverar Ómars í stari eru: 1975 - 1977 Erlingur Ragnar Lúðvíksson. 1978-1987 Jónas Traustason. 1988 - 1995 Halldór Heiðar Jónsson. 1995-2000 Valdimar Fr. Valdimarsson.

Hálf öld frá fyrsta leik á Kópavogsvelli

Vígslu­leik­ur Kópa­vogs­vall­ar fyr­ir 50 árum, þann 7. júní 1975 kl.14:00, var gegn Ólafsvíkur Víkingum í næstefstu deild - sem þá hét 2. deild. Um ójafna viður­eign var að ræða enda karlalið Breiðabliks mjög sterkt árið 1975. Sigruðu deildina með yfirburðum og fóru upp í 1. deild (efsta deild) með markatöluna 51:9 og 13 unna leiki af 14 mögulegum. Það var markahrókurinn Hinrik Þórhallsson sem skoraði fyrsta mark Breiðabliks á nýjum Kópavogsvelli. Hinrik afrekaði einnig í leiknum að skora þrennu á aðeins þremur mínútum. Mynd: Haraldur Erlendsson tekur á móti blómvendi frá fyrirliða Ólafsvíkur Víkinga fyrir vígsluleikinn 7. júní 1975.

Tveimur vikum síðar spilar meistaraflokkur kvenna sinn fyrsta mótsleik á Kópavogsvelli. Fyrirliði liðsins, Rósa Á. Valdimarsdóttir, skoraði fyrsta mark kvennaliðsins á nýja heimavellinum í 1:3 tapi gegn Fram 22. júní 1975. Rósa var svo aftur á ferðinni nákvæmlega ári síðar og skoraði fyrsta sigurmark kvennaliðs Breiðabliks á Kópavogsvelli í 2:1 sigri á Fram 22. júní 1976. 

Mynd: Kvennalið Breiðabliks 1975. Efri röð frá vinstri: Valdimar Kr. Valdimarsson, Svanfríður María Guðjónsdóttir liðstjóri, Dóra Hjálmarsdóttir, Ása Alfreðsdóttir, Anna Margrét Ingólfsdóttir, Ingibjörg Herdís Halldórsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir og Haraldur Erlendsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Hjördís Magnúsdóttir, Jónína Kristjánsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir fyrirliði, Arndís B. Sigurgeirsdóttir, Ásta María Reynisdóttir og Kristín Sylvía Valdimarsdóttir.

Efsta deild (1.deild) á Kópavogsvelli

1976 Karlalið Breiðabliks spilar aftur í 1. deild. Valdimar Fr. Valdimarsson skorar fyrsta mark karlaliðs Breiðabliks á Kópavogsvelli í leik gegn Valsmönnum í 1. deild.

Hinrik Þórhallsson skorar fyrsta sigurmark karlaliðs Breiðabliks á Kópavogsvelli í efstu deild í 3:2 sigri gegn Þrótti R.

Meistaraflokkur karla árið 1975. Þessir kappar unnu B-deildina það árið. Kópavogsvöllur var vígður þetta sama ár. Efri röð f.v: Guðni Stefánsson form. Knattspyrnudeildar, Þorsteinn Friðþjófsson þjálfari, þá nýráðinn (var frá 1975-1977), Helgi Snorrason, Þráinn Þorbjörnsson, Ásgeir Friðþjófsson, Gunnlaugur Helgason, Einar Þórhallsson, Ólafur Friðriksson, Hörður Harðarson. Neðri röð f. v.: Páll Snorrason, Ólafur Hákonarson, Heiðar Breiðfjörð, Gísli Sigurðsson, Hinrik Þórhallsson, Kristján Þorvaldz, Kormákur Bragason.

Upp á dag og tíma

Eins og fram hefur komið var vígsluleikur Kópavogsvallar fyrir 50 árum flautaður á kl.14:00 laugardaginn 7. júní kl. 14:00. Og nákvæmlega 50 árum síðar, í dag 7. júní 2025 kl.14:00, var flautað til leiks Breiðabliks og FHL á Kópavogsvelli í Bestu deild kvenna.  

Byrjunarliðið: Aftari röð f.v.: Agla María Albertsdóttir fyrirliði, Elín Helena Karlsdóttir, Barbára Sól Gísladóttir, Andrea Rut Bjarnadóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Heiðdís Lyllíardóttir. Fremri röð f.v.: Sammy Smith, Heiða Ragney Viðarsdóttir, Telma Ívarsdóttir markvörður, Kristín Dís Árnadóttir og Birta Georgsdóttir. 

Heimavellir Breiðabliks frá upphafi

1953: Breiðablik fær úthlutað svæði á horni Kópvogsbrautar og Urðarbrautar. Svæðið er þekkt sem Vallargerðisvöllur og hefur frá upphafi verið malarvöllur. Völlurinn var tekinn formlega í notkun árið 1954 og hófu félagar í Breiðabliki með aðstoð bæjarins að byggja baðhús.

1957: Melavöllur er heimavöllur Breiðabliks í fyrsta leik félagsins á Íslandsmóti.

1960: Breiðablik tekur aftur þátt í Íslandsmóti og spilar heimaleiki á Melavellinum.

1964: Vallargerðisvöllur vígður sem löglegur keppnisvöllur fyrir neðri deildir. 

1970: Vallargerðisvöllur verður löglegur keppnisvöllur.

1971: Blikar komnir í efstu deild í fyrsta sinn. Melavöllur verður aftur heimavöllur félagsins vegna aðstöðuleysis fyrir áhorfendur á Vallargerðisvelli.

1972: Enn frekari endurbætur gerðar á Vallargerðisvelli.

1973: Flóðljós Vallargerðisvallar vígð í mars 1973.

 

Ekki missa af heimildarmynd Heiðars B. Heiðarssonar "Með sand í augum" um Vallargerðisvöll. 

 

 

 

1975: Kópavogsvöllur vígður 7. júní. Kópa­vogs­völl­ur var lengi einn besti grasvöll­ur lands­ins, enda upp­hitaður, en skipt var yfir á  gervi­gras árið 2019.

1991: Sandgrasvöllurinn (nú Fífan) tímabundið heimavöllur Breiðabliks vegna endurnýjunar Kópavogsvallar.

2019: Undirlagi Kópavogsvallar breytt í gervigras. Gervigras á Kópavogsvöll og Fagralund - Breiðablik

2023: Gervigras Kópavogsvallar endurnýjað.

Fjöldi leikja á Kópavogsvelli

Skráðir mótsleikir meistaraflokks karla á Kópavogsvelli frá upphafi eru 594. Sigurleikir eru 306 gegn 173. 

Skráðir mótsleikir meistaraflokks kvenna á Kópavogsvelli frá upphafi eru 403. Sigurleikir eru 297 gegn 75. 

-PÓÁ

Myndir

image

image

image

image

image

image

image

image

image

Til baka