J
FH
0 0
Breiðablik
A-deild 15. umferð Kaplakrikavöllur 20.07.2026
15
1
12

Þrátt fyrir dumbung og súld  voru aðstæður til knattspyrnuiðkunar hinar prýðilegustu í kvöld þegar Blikar sóttu FH-inga heim í 15. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Hiti vel yfir frostmarki, hægur andvari af suðvestri og úrkoman að mestu í grennd. Völlurinn sýndist í fínu standi. Grasið iðjagrænt og snöggklippt. Góður slatti af Blikum mættir í stúkuna til að sýna samstöðu.
Nokkrar breytingar frá síðasta leik og byrjunarliðið sem hér segir;
 

Jafnræði var með liðunum fyrstu 15-20 mínúturnar þó heimamenn hafi ógnað meira allra fyrstu mínúturnar. Okkar menn hristu svo úr sér hrollinn en náðu ekki að skapa mörg færi. Stundum fannst mann vanta áræðni í okkar menn þegar þeir voru í góðri stöðu en of oft voru það einfaldlega slakar sendingar sem ollu tjóni. Lengst af var því fátt um fína drætti en feilsendingar legíó á báða bóga. En eftir rúmlega 20 mínútna leik fengu Blikar aukaspyrnu hægra megin á miðjum vallarhelmingi FH. Dagur Örn sveiflaði boltanum inn í teig og þar náði Ívar Örn að skalla boltann í netið en dómarinn dæmdi brot á okkar menn. Þetta er búið að sýna og (marg)endursýna í sjónvarpinu og það er algjörlega ómögulegt að sjá hvað var dæmt á og þarna voru okkar menn hart leiknir. Áfram hélt baráttan og er óhætt að segja að kappið bar fegurðina ofurliði oftar en tölu var á komið. Á 27. mínútu gerðu Blikar kröfu til vítaspyrnu þegar boltinn fór greinilega í hönd varnarmanns heimamanna eftir skot frá Arnóri Gauta en enn sá dómarinn aumur á heimamönnum. Skömmu síðar komust heimamenn í gegnum vörn okkar en Anton Ari gerði vel og hirti boltann af tám sóknarmanns FH. Besta færi leiksins fram að þessu. Blikar fengu svo hornspyrnu skömmu síðar eftir mikinn sprett Ágústs Orra, en Ívar skallaði rétt framhjá.
Svo kom stóra grínatriði kvöldsins. Ágúst Orri var í þann munda að sleppa inn í teig heimamanna þegar honum var skellt í grasið og dæmd aukaspyrna. Hlynur Freyr tók aukaspyrnuna en leikmaður FH varði með olnboganum sem stóð nánast hornrétt í 90° út frá líkama leikmannsins. Dómarinn sá þetta greinilega en ákvað að þetta væri ekki vítaspyrna. Þetta er það sem maður kallar alvöru dómaraskandal og með réttu væri þessi dómari settur í bann í nokkra leiki.
En okkar menn lögðu ekki árar í bát og komust í úrvals stöðu skömmu síðar en fyrsta snertingin sveik Ágúst illilega og færið rann út í sandinn. Á lokamínútum áttu heimamenn svo þokkalegt færi en náðu ekki að nýta það. Skömmu síðar flautaði arfaslakur dómari til leikshlés og það gjörsamlega sauð á mörgum stuðningsmönnum Blika. Og meira að segja Kristinn Kærnested hinn geðþekki fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar KR og nú lýsandi á SÝN Sport átti bara eitt orð yfir ruglið í dómaranum. ,,Stórfurðulegt“.
Það var fátt annað rætt í hálfleiknum og menn voru með símann á lofti að skoða atvikin stóru. Ekki léttist lundin við það og var kaffilystin með allra minnsta móti og hefur hún þó staðið af sér marga skúrina í gegnum tíðina. En þetta var einum of mikið.

Síðari hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri. Meiri kraftur í heimamönnum og innan tíu mínútna voru þeir í tvígang nærri búnir að setj´ann. Í fyrra sinn bjargaði Anton með stórbrotinni vörslu en hið seinna small í stönginni utanverðri. Þar sluppu Blikar vel.
Og nú fóru Blikar í tvöfalda skiptingu. Viktor Karl og Kristinn Jóns komu inn í stað Þórs og Arons Bjarna. En áfram héldu FH-ingar að þjarma að okkar mönnum og Anton og Hlynur björguðu vel, í sömu sókninni. Og enn skiptu Blikar inn nýju blóði. Jónatan og Arnar Bjarki komu inn í stað Davíðs og Dags Arnar. Og nú varð hlé á orrahríð heimamanna sem skömmu síðar fóru í fjórfalda skiptingu og hertu þá aftur sóknina.
Nokkur harka var nú kominn í leikinn en næsta færi var FH-inga sem skölluðu í stöng og sá sem átti skallann gerði sig svo sekan um dæmalausan fautaskap þegar hann steig viljandi á maga/brjóstkassa Ívars Arnar sem lá í teignum. Sem fyrr sá dómarinn ekkert og dæmdi ekkert. Þarna hefði FH-ingurinn átt að fá rautt spjald en í stað þess beit dómarinn höfuðið af skömminni. Vonandi tekur aganefnd KSÍ þetta fyrir því hún hefur heimild til þess þar sem dómarinn aðhafðist ekkert. Svona fautaskapur á ekki og má ekki líðast. Og til að bæta næstum því gráu oná svart var sá seki nærri því búinn að skora þegar hann skallaði fram hjá í góðu færi í næstu sókn. Bæði lið freistuðu þess að knýja fram sigur á lokamínútunum en tilraunir voru tilviljunarkenndar og máttlitlar. 

Þar með lauk þessum dæmalausa leik sem var lengst af lítið fyrir augað en fer samt í sögubækurnar.

Blikar áttu ekki sinn best leik en börðust vel. Það var erfitt að sjá hvert leikplanið var lengst af og leikur okkar manna var oft á tíðum tilviljanakenndur og þess á milli morandi í feilsendingum. Ekki gott sem sagt. Að því sögðu þá voru þeir grátt leiknir með ,,Stórfurðulegum“ ákvörðunum mannsins með flautuna, en það afsakar ekki slakan leik. Það má geta þess að þjálfari heimamanna var hæstánægður með dómarann og fannst hann dæma vel. Lái honum hver sem vill. En honum fannst Blikarnir grófir 😊. Undirritaður leggur nú ekki meira á ykkur góðir hálsar. 

Næsti leikur okkar manna er heimaleikur okkar gegn Eyjamönnum næsta mánudag. Við mætum og hvetjum okkar menn í baráttunni. Enn eru mörg stig í pottinum og ,,langt til Húsavíkur“.

Áfram Breiðablik!

OWK.