24. október er merkilegur dagur. Í fyrsta lagi er þetta dagsetning kvennafrídagsins á Íslandi 1975 sem var vendipunktur í heillavænlegri framþróun íslensks samfélags. Breiðablikskonur áttu sannarlega skilið frí þennan dag árið 2026 eftir að hafa með afgerandi seiglu dregið að landi sinn 21. Íslandsmeistaratitil kvöldið áður.
Þetta er líka afmælisdagur Sameinuðu þjóðanna. Þennan dag styrjaldarlokaárið 1945 sáu margar þjóðir heims fyrir sér veröld byggða fremur á samvinnu til siðferðislegs þroska mannkynsins en mikilmennskustælum sem hafa tilhneigingu til að leiða af sér átök og eyðileggingu. 24. október markar líka að réttir tveir mánuðir eru til aðfangadags jóla. Jólalagasíbyljustöðin fer í loftið og Sunnubrautarkópavogsbúinn Helgi fokkings Björns kemur með fyrirheit um að gera ástinni sinni gott – Ef ég nenni.
Að nenna er dyggð. Hún er einkanlega lofsverð þegar spila þarf fótboltaleiki sem litlu máli skipta. Allir leikir skipta þó einhverju máli og þess vegna röltum við feðgar saman á völlinn upp úr hádegi á svölum og seinna skítköldum laugardegi. Montrétturinn okkar á milli var vitaskuld í húfi í þriðja skiptið þetta sumarið. Seint í maí kom ég fjári borubrattur heim eftir 6-3 sigur í Kópavoginum.
Og um miðjan ágúst átti ég ágæta fjölskylduskemmtun í röngum Vesturbæ þótt jafntefli hafi orðið niðurstaðan.
24. október 2026 er líka dagurinn þegar ég gaf Breiðablikstrefilinn minn. Nágrannar mínir hér á Melunum reka sumir ennþá upp stór augu þegar ég mæti á KR-völlinn með Breiðablikstrefil en í dag fór ég semsagt af vellinum trefilslaus. Þannig var að fyrir leik, á sólpallinum bak við hús, birtust tveir Englendingar sem voru eitthvað að spyrja okkur spekingana út í byrjunarliðin, sem þá hafði verið dreift útprentuðum til áhangenda. Ég hafði orð á því að þetta þættu mér slakir njósnarar erlendra liða sem væru ekki með grundvallaratriði á hreinu. Kom þá í ljós að þeir félagarnir – Nick og Steve – voru aðallega á Íslandi til að sjá Queen of the Stone Age en fótboltaleikurinn var hrein aukageta. Reyndar spurði Nick mig hvar hægt væri að ná í Breiðablikstrefil. –Hér fyrir sunnan læk, svaraði ég. Síðar í samtalinu kom á daginn að eigandi barsins í London sem Nick vinnur á hefur spilað Football Manager árum saman undir merkjum Breiðabliks og er í þann mund að koma liðinu í Meistaradeild Evrópu leiksins. Hann hafði á orði við starfsmanninn fyrir Íslandsferðina að gaman væri nú að eignast Breiðablikstrefil. Skipti engum togum að Bikarúrslitatrefillinn minn frá 2009 varð nú hans og ekki lengur minn.
Ekki var maður nú kominn á völlinn til að fækka frekar fötum heldur láta þessi skemmtilegu fótboltalið ylja sér svolítið í haustsvalanum. Skemmst er frá því að segja að annað liðið reyndist talsvert skemmtilegra en hitt. Fyrirliði KR-inga jafnaði markaskorsmetið í efstu deild strax á 11. mínútu og maður hélt kannski að árekstra- og átakalitlu boltadútli beggja liða væri þá lokið þann daginn. Öðru nær. Þorleifur jafnar fyrir okkar grænu á 25. en mínútu síðar kemst KR aftur yfir með marki frá nýfermda leikmanninum, Sigurði Breka. Altarisganga hans hélt áfram tveimur mínútum síðar og staðan 3-1 en hann fullkomnaði svo þrennu sína með áhugaverðu sjálfsmarki. Þegar það gerðist datt á dauðaþögn á vellinum. Það mátti heyra saumavél detta nema hvað einn á varamannabekk Breiðabliks stóð upp og fagnaði markinu. Enginn annar, hvorki í stúku né á velli. Þetta var sérstakt augnablik.
KR-ingar röltu aftur í gegnum Breiðabliksvörnina fyrir hálfleik og staðan 4-2. Hún hefði alveg getað verið önnur en dómari leiksins sá ástæðu til að taka þátt í sprellinu og dæma af prýðilega löglegt mark okkar manna.
Öryggistilkynning til KSÍ
Það er ekki boðlegt að í þessum skítakulda sé sá óheppni starfsmaður leiksins sem er skuggamegin vallarins einungis búinn stuttermabol og stuttbuxum. Á mínum vinnustað hugsum við vel um hvert annað og látum vita ef eitthvert okkar er undirorpið hættu. Hér sést aðstoðardómari þurrka hor úr nefi, illa búinn og er það ábending til atvinnurekanda að búa betur að starfsfólki sínu, ef ekki með búnaði þá með upplýsingum um æskilegan búnað.
Í hálfleiknum átti ég fínt spjall við mann og annan sem ég skrifa vangaveltur um hér í lokin en þennan seinni hálfleik nenni ég ekki að rekja. Svona gekk þetta allt til:
|
0' |
0-0 |
Hitti Englendinga Steve og Nick |
|
11' |
1-0 |
Aron jafnar markametið |
|
25' |
1-1 |
Þorleifur |
|
27' |
2-1 |
Sigurður Breki |
|
29' |
3-1 |
Sigurður Breki |
|
37' |
3-2 |
Sigurður Breki |
|
39' |
4-2 |
Galdur |
|
42' |
4-2 |
Löglegt mark dæmt af Blikum |
|
43‘ |
4-2 |
Hitti Ásdísi nágranna sem þykist hissa á Breiðablikstrefli |
|
45'-45' |
4-2 |
Mikið spjallað og spekúlerað í hálfleik |
|
46' |
4-2 |
Nick fær trefilinn |
|
52' |
5-2 |
Arnór Ingvi |
|
56' |
5-2 |
Löglegt mark dæmt af Blikum |
|
72' |
6-2 |
Fannar |
|
74' |
6-3 |
Birkir |
|
75‘ |
6-3 |
Hitti Ásdísi sem fagnar fjarveru trefilsins |
|
89' |
7-3 |
Aron slær metið |
|
90' |
8-3 |
Galdur |
|
90‘ |
8-3 |
Sonurinn montar sig |
Jæja.
Þetta tímabil hefur verið sérkennilegt. Hvor tveggja, lið stelpnanna og strákanna, hafa verið brokkgeng en hvor tveggja landa stórum titli þrátt fyrir það. Bæði lið voru með nýja þjálfara og hjá stelpunum voru rosalegar breytingar á leikmannahópnum. Þær héldu samt hausnum miklu betur en strákarnir. Fengu verulega samkeppni sunnan úr Hafnarfirði en muldu þetta á seiglu og samstöðu fram í Íslandsmeistaratitil.
Karlamegin eru Víkingar með ansi seigt lið og KR bætti getu í fótbolta við ferskleika síðasta tímabils. Umskipti frá í fyrra til ársins í ár mistókst hjá strákunum okkar. Að flétta saman reynslu og getu eldri leikmanna við ákefð og lærdómsfýsn þeirra yngri heppnaðist ekki.
Við endum fyrir neðan Skagamenn, sem hafa verið í ströggli frá því á síðustu öld. Við fáum á okkur 57 mörk og skorum 54. Við vinnum 10 leiki en töpum 11. Nú ætla ég ekki að tala fyrir fleiri en sjálfan mig. Mér hefur fundist vanta samstöðu inni á vellinum hjá okkar gaurum. Þetta hafi ekki verið eitt lið í nánast neinum leik. Þá spyr maður um forystu. Höggi, sá dráttarklár baráttu og sameiginlegrar vinnu, var talsvert frá í sumar. Þegar Höskuldur var fjarri fannst manni liðið stundum vera sérkennilega tætt og lítt saman spilandi. Þarna einfaldlega verður traustur þjálfari að vera til staðar að tvinna saman kosti æsku og elli.
Sem minnir mig á: takk Kiddar – Jóns og Steindórs. Þið hafið glatt mig meira en ykkur nokkurn tíma grunar.
Maður heyrir svo náttúrulega kjaftasögur á vellinum undir lok tímabils, sérstaklega þegar verið er að sprella inni á vellinum. Það væri ömurlegur leikjarpistill sem segði bara að maður hefi heyrt kjaftasögur án þess að segja meira en okkar fyrrverandi þjálfari sem er að taka við Valsliðinu (sem betur fer erum við ekki alveg í þess klúbbs krísu) er að reyna við marga Blika fyrir næsta tímabil, t.d. Viktora og Högga, og að sérstök áhersla verði á það í klefavinnu Breiðabliks í vetur að brúa á milli yngri kynslóðar og eldri borgara liðsins. Þegar maður les þetta tvennt saman má búa til allskonar samsæriskenningar en eins og einn frábær vinur minn sagði; samsæriskenningar eru yndislegar – alveg þangað til maður fer að trúa þeim 😊
Takk öll fyrir tímabilið – leikmenn og þolinmóðir varamenn og líka allt fólkið sem gerir mér kleift að mæta bara og njóta. Grillarar, yngriflokkaiðkendur, foreldrar, stjórnarfólk, sjúkraþjálfarar, boltasækjar, vallarstarfsfólk, öryggisverðir, ljósmyndarar, bjórdælarar, treflaseljarar (þarf að nálgast ykkur betur) og allur þessi mannskapur sem ekki fær medalíu þótt góður árangur náist.
Takk fyrir sumarið og hittumst heil í vor
-Eiríkur Hjálmarsson