Dætur mínar hafa ekki komið oft með mér á völlinn. Síðast var það líklega á EM kvenna í Hollandi, en þangað gerði stórfjölskyldan sér ferð fyrir tæpum áratug. Hún var því ekki lítil gleði gamla mannsins þegar sú eldri sýndi áhuga á að koma með á KR-Breiðablik, sen þessir leikir eiga sérstakan sess á heimilinu þar sem yðar einlægur lenti í því á lífsleiðinni að ala upp KR-inga. Og ekki nóg með það, heldur ætluðu tvær dótturdætur að slást í hópinn líka. Það eru jól og páskar þegar KR og Breiðablik eigast við og nú bættist ein stórhátíðin við. (Það er rétt að taka fram að téð dóttir mín og Eiður Gauti KópavogsKRingur eru systrabörn, þannig að það ekki alveg víst að það hafi verið ég einn sem var að trekkja á völlinn 😊)
Ég hafði boðið dótturdætrunum Breiðabliksderhúfur til að sjá leikinn betur á móti kvöldsólinni. Nei takk. Við erum með sólgleraugu, sögðu þær, en gripu með sér KR-buff, sem yngstu börnin mín hafa gleymt að taka með sér þegar þau fluttu að heiman. Og við sátum KR-megin í stúkunni, ég með minn Breiðablikstrefil en nágrannar mínir hér í ranga Vesturbænum eru löngu búnir að venjast því.
Þá að leiknum en svona stillti Óli liðinu upp á þessu yndisfagra ágústkvöldi og virkilega gott að sjá fyrirliðann okkar og fleiri leikmenn vera að braggast eftir mikið meiðslafár í hópnum.
Fyrri leikur liðanna, þarna í maí í Kópavoginum, var ævintýralegur. 6-3 varð niðurstaðan í leik sem einkenndist af mikilli ákefð okkar manna í spili og pressu. Þar voru svarthvítir felldir á eigin bragði; Breiðablik spilaði pressubolta KR-inga betur en þeir sjálfir. Það hélt áfram í byrjun þessa leiks, tæpum þremur mánuðum síðar. Vinnusemin skilaði unnum boltum á miðjunni og hreyfanleikinn skilaði góðum stöðum og færum í kjölfarið. Vorum soldið opnir til baka líka og KR-ingar fengu svosem alveg sóknarfæri á okkur. En það var Kristófer Ingi sem braut ísinn þegar fyrri hálfleikurinn var hálfnaður. Mannmörg sókn okkar manna sem þrýsti og ýtti þangað til Kristófer renndi tuðrunni yfir línuna úr teignum.
Það sljákkaði síðan enn meira í mannskapnum þarna í kringum mig þegar við fengum réttilega dæmt víti nokkrum mínútum síðar. Það dugði samt ekki til marks því Höggi lét frískan KR-markmann verja frá sér. Fengum dauðafæri skömmu síðar eftir frábært spil en aukaspyrnan sem þeir Höskuldur og Kristófer stilltu sér upp til að taka eftir tæpra 40 mínútna leik var bara miðlungs sennileg. Á meðan ég var að útskýra innsving og útsving fyrir sessunautum mínum tók Kristófer nokkur skref að boltanum og renndi honum lævíslega beint í netið fram hjá veggnum. 2-0 og yngri dótturdóttirin tók fram skáldsöguna sem hún hafði verið svo klók að kippa með sér á völlinn.
„Á pönnuna á Eið, á pönnuna á Eið,“ er jafnan á lagalista háværustu gargaranna á KR-leikjum. Söngur þeirra er jafnan ótónviss og með fleiri beygingarvillum en þessari. Hann er þó desibelaríkur og þróttmikill. Þetta urðu áhrínsorð þarna seint í fyrri hálfleiknum en eftir fyrirgjöf í framhaldi af horni að okkar marki skallaði Eiður þessi í mark og frænkur hans við hlið mér fylltust stolti þegar myndin af honum birtist á markatöflunni. Mér fannst þetta náttúrulega frat og það tók verulega á, örskömmu síðar, að fagna mestmegnis innan í sér (ég vil ekki reyna of mikið á nágrannana) þegar okkar grænklæddu sveinar skoðuðu þvílíkt gull af marki. Nú var það Ágúst sem renndi boltanum síðustu metrana yfir línuna en spilið í aðdragandanum var svo óskaplega snoturt, yfirvegað og snjallt að unun var á að horfa.
Og til hálfleiks gengu Blikar með 3-1 forystu og nýbúnir að sýna þessa snilld. Bjór handa gamla, krap handa stelpunum (en röðin í það var talsvert styttri). Ég notaði leikhléð til að hitta Breiðabliksfólk á vellinum og það sló mig svolítið að sigurvissa var ekki ráðandi meðal þess þrátt fyrir nokkra yfirburði okkar pilta í fyrri hálfleiknum.
Vó!
Byrjaði ekki síðari hálfleikurinn á hrapallegum mistökum í vörn KR. Kristófer hirðir boltann, einn á móti markmanni, vippar yfir hann, aðeins of laust og það er bjargað á línu.
Ef þú ætlaðir að telja öll dauðafæri Breiðabliks í seinni hálfleik hefðirðu þurft til þess a.m.k. alla 5 puttana á annarri hendinni. KR-ingum dugðu hinsvegar 55 sekúndur til að jafna leikinn. Það var skellur og ég hreinlega nenni ekki að rifja hann upp hér.
Leikurinn hélt áfram að vera bráðskemmtilegur eftir að KR-inga jöfnuðu. Anton Logi átti fína innkomu, Jónatan bráðfína en allt kom þetta fyrir ekki og 3-3 jafntefli varð niðurstaðan.
Víkingar auka forystu sína í deildinni. Við erum áfram í þessu sérkennilega einskismannslandi, a.m.k. 7 stigum fyrir neðan Fram (það er næsti leikur og það væri skemmtilegt að halda dampi) en 5 fyrir ofan Skagann. Spilandi vel á móti KR en bara bærilega á móti öðrum liðum. Það er eins gott að þessi fokkings bikarúrslitaleikur vinnist
Annars er fótbolti bara leikur og engin þörf að kvarta þegar blessuð sólin skín. Ég held montréttinum með markatöluna 9-6 eftir tvo leiki í sumar og 4-1 í stigum.
Takk fyrir það!
Stelpurnar voru mjög ánægðar með að hafa komið á þennan næstskemmtilegasta leik sumarsins til þessa og að hitta Kópavogsfrænda sinn í leikslok.
Takk fyrir leikinn stelpur!
-Eiríkur Hjálmarsson