Ritnefnd Breiðabliks er um þessar mundir með söfnun í gangi vegna fjármögnunar á útgáfu 80 ára sögu Breiðabliks sem áætlað er að komi út á 80 ára afmæli félagsins árið 2030. Bókin verður yfirgripsmikil þar sem sögu hverrar deildar verður gerð góð skil frá upphafi ásamt gömlum og nýjum myndum m.a. af iðkendum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðrum velunnurum félagsins.
Hér er um metnaðarfullt verkefni að ræða og er fjármögnun bókarinnar sambland af styrkjum frá einstaklingum á "Tabula Gratulatoria" sem birtist í bókinni, fyrirtækjum, opinberum aðilum.
Greiðsla styrkja:
Ef þú vilt styrkja verkefnið þá er hægt að ganga frá greiðslu með greiðslukorti inn á greiðslusíðu Breiðabliks. Greiðslusíðan krefst innskráningar með rafrænum skilríkjum.
Hlekkur greiðslusíðu hér
Þar geta einstaklingar styrkt með eftirfarandi upphæðum:
Kr. 25.000,-
Kr. 30.000,-
Kr. 35.000,-
Kr. 40.000,-
Kr. 50.000,-
Ef þú vilt leggja fram styrk sem er hærri en ofangreindar fjárhæðir þá er mögulegt að greiða oftar (mismunandi upphæðir) í gegnum greiðslusíðuna eða senda á undirritaðan beiðni um upplýsingar um aðra greiðsluleið sem hentar betur.
Almennt um skattafrádrátt (skatturinn.is):
Einstaklingar sem greiða skatt á Íslandi fá skattafrádrátt (lækkun á tekjuskattsstofni) allt að 350.000 kr. á ári, vegna gjafa og framlaga til Breiðabliks þar sem félagið er skráð á almannaheillaskrá Skattsins.
Dæmi: 25.000 kr. styrkur veitir 7.873 kr. í beinan skattafrádrátt (31,49% af upphæð styrksins).
Skattafrádráttur er endurgreiddur eftir skil á skattskýrslu. Það virkar þannig að Breiðablik sendir inn lista allra styrkveitenda þannig að styrkurinn birtist sjálfkrafa á skattskýrslu viðkomandi til frádráttar á næsta skatttímabili.
Tabula Gratulatoria:
Einstaklingum sem styrkja þetta framtak fyrir 25.000 krónur eða meira býðst að vera á heillaóskaskrá, "Tabula Gratulatoria".
Ef þú óskar eftir að vera EKKI á þeim lista í bókinni bið ég þig að gefa það til kynna í svari á undirritaðan (saga@breidablik.is )
Öll erum við mikilvægur hluti af þessari merkilegu sögu og vonum við að þú sjáir þér fært að styrkja þetta mikilvæga framtak sem mun gefa velunnurum og almenningi innsýn í þá merkilegu sögu og það frábæra starf sem unnið hefur verið hjá Breiðablik við að búa til eitt stærsta og öflugasta íþróttafélag á Íslandi. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi framtakið
Hikaðu ekki við að senda tölvupóst eða hringja í mig ef spurningar vakna.
Með Blikakveðju,
fyrir hönd Ritnefndar Breiðabliks
Snorri Páll Einarsson
Ritnefnd Breiðabliks
Dalsmári 5, 201 Kópavogur
saga@breidabliks.is
Tel: +354 618 1240