Þegar horft er til leiksins gegn Ægi í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ er ekki hægt að líta fram hjá nafni sem lifir enn sterkt í minningu stuðningsmanna Breiðabliks. Stuðningsmönnum. Serbneski framherjinn Nenad Zivanovic kom til Breiðabliks árið 2006 og varð í kjölfarið einna af lykilmönnum Breiðabliksliðsins næstu árin á eftir. Nenad skoraði 25 mörk í 71 mótsleik á þremur tímabilum með Blikum og varð fljótt vinsæll meðal Blika.
En nú, rúmum áratug eftir að hann lagði skóna á hilluna mætir Nenad gamla félaginu sínu í 8‑liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ á heimavelli Ægismann í Þorlákshöfn.
En þegar flautað verður til leiks á föstudaginn verður engin rómantík í boði. Þetta eru 8‑liða úrslit, bikarleikur þar sem allt getur gerst, og bæði lið koma til með að mæta ákveðin til leiks.
Sagan & Tölfræði
Eini innbyrðis mótsleikur liðanna er þessi leikur í Lengjubikarnum á Sandgrasvellinum í Kópavogi árið 1997. Mörk Blika í leiknum skoruðu Kjartan Einarsson (2), Sævar Pétursson, Bjarki Pétursson og Ívar Sigurjónsson. Mark Ægis skoraði Björgvin Stefánsson.
Leið liðanna í 16-liða úrslit 2026
Í 32-liða úrslitum mættust Árbær og Ægir á Domusnova vellinum í Breiðholtinu. Ægir gerði góða ferð þangað og vann leikinn með 6 mörkum í 8 marka leik. Andstæðingur Ægis í 16-liða úrslitum var efstu deildar lið KA á heimavelli Akureyrarliðsins og unni leikinn með tveimur mörkum gegn einu. Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur.
Breiðablik vann öruggan 1:6 sigur á liði Kormáks og Hvatar í 32-liða úrslitum á gervigrasvellinum á Sauðárkróki. Sannfærandi á Króknum! Í 16-liða úrslitum sýndu Blikar gæði einum manni færri gegn Þrótti á Avis vellinum og unnu leikin með einu marki í þriggja marka leik í16-liða úrslitum.
Opið verður á Heimabistró fyrir stuðningsmenn beggja liða frá klukkan 15:00.
Áfram Breiðablik!
-PÓÁ