FRÉTTATILKYNNG FRÁ KNATTSPYRNUDEILD

Jökull I. Elísabetarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki.

Jökul þarf ekki að kynna fyrir Blikum eða öðrum sem fylgjast með íslenskum fótbolta. Hann lék 116 leiki með Breiðablik frá 2010 til 2014 og varð m.a. Íslandsmeistari með liðinu árið 2010 (sjá feril hér). Þá þjálfaði hann Augnablik á árunum 2017-2021 með góðum árangri, þar sem hann vann með mörgum ungum og uppöldum Blikum. Árið 2022 færði Jökull sig yfir hæðina og þjálfaði hjá Stjörnunni frá 2022 til 2026.

Knattspyrnudeild Breiðabliks er afar ánægð með að fá Jökul til starfa. Með ráðningu hans verður haldið áfram að byggja á góðu starfi undanfarinna ára en karlalið félagsins hefur unnið þrjá stóra titla á síðustu fimm árum. Auk þess hefur liðið í tvígang tekið þátt í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu, en Blikaliðið mun hefja leik í undankeppni Evrópudeildarinnar um mitt næsta sumar. Auk þess mun 2. flokkur félagsins taka þátt í Evrópukeppni á næsta ári, í kjölfar þess að liðið varð Íslandsmeistari í síðasta mánuði.

„Ég er stoltur og þakklátur að fá tækifæri til að koma til baka og þjálfa Breiðablik. Ég geri mér grein fyrir því að kröfur félagsins og stuðningsmanna eru miklar og ég ætlast til mikils af mér og liðinu. Ég vona að leikmenn hvíli sig vel í fríinu, þar sem við munum taka vel á því þegar þeir mæta til baka. Það eru spennandi tímar hjá félaginu og ég hlakka til að byrja. Ég treysti því að stuðningsmenn séu til í að búa til alvöru stemmningu með liðinu", segir Jökull.

Byggt á þessum sterka grunni, með öflugan leikmannahóp, eitt besta uppeldisstarf á landinu og sífellt betri aðstöðu hefur Breiðablik heilbrigðar væntingar um komandi tímabil. Áfram verður byggt að grunngildum Breiðabliks og leggja jöfnum höndum áherslu á tækifæri fyrir unga leikmenn og að spila árangursríkan og skemmtilegan fótbolta. Við erum þess fullviss að Jökull er rétti maðurinn til að leiða þessi næstu skref.

Við bjóðum Jökul I. Elísabetarson hjartanlega velkominn til Breiðabliks.