Í hinum margfrægu barnabókum ,,Hvar er Valli?“ eftir breska teiknarann og barnabókahöfundinn Martin Handford þurfa lesendur að spreyta sig á þeirri þraut að finna sögupersónuna Valla í mannfjölda á strönd, borg, sirkus, safni eða jafnvel fantasíuheimi. Á margan hátt þurftu áhangendur Blika að spyrja sig hvar varnarmenn Blika voru í fyrri hálfleik í leiknum gegn Fram í gær. Allir tóku þeir eftir frægasta Blika-Vallanum, Valgarði Guðjónssyni söngvara Fræbbblana, sem sat fölur og fár í stúkunni og horfði upp á þessa hörmung sem leikmenn buðu upp á í fyrri hluta leiksins.
Staðan 1:4 fyrir gestina þegar gengið var til búningsherbergjanna í leikhléi og einhverjir stuðningsmenn Blika fóru heim í fússi! En ekki Valgarður Guðjónsson sem greinilega hafði enn trú á sínu liði! Hann blandaði geði við kunningja sína í Framliðinu fyrir utan sjoppuna og lýsti því yfir að Blikaliðið myndi koma til baka í seinni hálfleik. ,,Shout-out“ á hann!
Enda reyndist Valli hafa rétt fyrir sér eins og oft áður - allt annað Blikalið mætti til leiks í seinni hálfleik! Maður veltir fyrir sér hvað var í drykknum þeirra eða hvað það var sem Ólafur þjálfari sagði í hálfleik! Viktor Karl kom inn á miðjusvæðið og strax kom meiri ró á spilið. Blikar tóku öll völd á vellinum og hver sóknin á fætur annarri dundi á Frammarkinu. Eitthvað varð undan að láta og Davíð setti sitt annað mark í leiknum á 56. Mínútu og svo bætti Þorleifur strax þriðja markinu við aðeins þremur mínútum síðar.
Bættist nú hagur Strympu og áttu stuðningsmenn Blika alveg eins von á því að ná að jafna leikinn. En þrátt fyrir fjöldamörg færi vildi tuðran ekki inn og þvi fór sem fór- 3:4 tap staðreynd. Munaði þar mikið um stórleik hins uppalda Blika, Viktors Freys í marki gestanna. Þar sannaðist hið forkveðna að sjaldan launar kálfurinn ofeldið!
Stuðningsmenn Blika klóra sig í hausnum eftir þennan leik. Hvað er það sem gerist hjá Blikaliðinu hvað eftir annað í sumar? Liðið virðist slökkva á sér og fær á sig hvert markið á fætur öðru. Svo kemur eitthvað allt annað Blikalið inn á völlinn eftir leikhlé eða í næsta leik. Er til of mikils mælts að fá aðeins meiri stöðugleika í spilamennskuna? Næsti leikur verður mælikvarði á þetta. Þá mætum við Stjörnumönnum á Eikarvellinum á mánudaginn kl.19.15. Mikið hefur gengið á í herbúðum Stjörnumanna í sumar og má búast við þeim dýrvitlausum í þennan leik. En þá reynir á karakterinn í Blikaliðinu! Valli Guðjóns ætlar örugglega að mæta. En hvað með okkur hin, bæði leikmenn og áhorfendur? Ætlum við að mæta? Það kemur í ljós á mánudaginn!
AP