Við Blikar kveðjum í dag okkar góða félaga, Guðmund Oddsson, sem lést eftir skammvinn veikindi þann 24.júlí s.l. Guðmundur Oddsson var þeirrar gerðar að hann sat ógjarnan hjá þegar þegar verkefnin blöstu við og snemma fór hann að láta til sín taka í málefnum bæjafélagsins og Breiðabliks eftir að þau Sóley fluttu í Kópavoginn. Guðmundur hóf að stunda blak af krafti þegar sú íþrótt ruddi sér til rúms á 8.áratug síðustu aldar ásamt nokkrum samkennurum og nemendum við Víghólaskóla og var formaður Blakdeildar Breiðabliks frá stofnun hennar árið 1973 til ársins 1979.

Guðmundur tók virkan þátt í sveitarstjórnarmálum og var um árabil bæjarfulltrúi í Kópavogi og formaður bæjarráðs. Árið 1995 var Guðmundur kjörinn formaður knattspyrnudeildar félagsins og gegndi starfi formanns til ársins 2000. Guðmundur var útnefndur Heiðursbliki árið 2000.  

Árið 2006 var hann kjörinn formaður Golfklúbbs GKG. Því starfi gegndi hann svo óslitið til 2015 og svo aftur frá 2018 – 2022. Óhætt er að segja að hann sé að öðrum ólöstuðum maðurinn á bak við glæsilega uppbyggingu á félagssvæði golklúbbsins.

Guðmundur Oddsson var ekki einhamur maður. Hann lét verkin tala og beitti sér af alefli í þeim verkum sem hann tók að sér og var trúað fyrir.

Við hjá Blikar.is kveðjum í dag góðan félaga. Undanfarna tvo áratugi eða þar um bil hefur Guðmundur verið fastagestur í laugardagskaffinu í Smáranum og gjarnan verið miðpunktur samkomunnar. Oft kom hann stormandi og gustmikill, og slengdi fram vel ígrundaðri sleggju yfir viðstadda, gjarna um þau málefni sem voru efst á baugi hverju sinni, áður en hann hellti í bollann. Glotti og tlkynnti okkur svo að Chelsea myndi örugglega vinna. Þá var gaman.

Um leið og við þökkum fyrir okkur og kveðjum öðlinginn Guðmund Oddsson, sendum við fjölskyldu hans og vinum  samúðarkveðjur.

Úför Guðmundar Oddssonar verður frá Lindakirkju föstudaginn 14.ágúst klukkan 13:00.