Vaskur hópur eldri knattspyrnuBlika hélt til Hollands dagana 17.-21. september 2026.
Tilgangurinn var að etja kappi við jafningja sína í hollenskum old-boys liðum en ekki síður að sjá atvinnuBlikana, Alfons Sampsted, Stefán Inga Sigurðarson og Willum Þór Willumsson, spila með liðum sínum NEC Nejmegen og Go Ahead Eagles (GAE) í hollensku úrvalsdeildinni.
Það er skemmst frá því að segja að þessir síungu Blikar stóðu sig einstaklega vel á knattspyrnuvellinum. Þeir spiluðu fjóra leiki á hraðmóti eldri flokks í bænum Deventer. Okkar drengir unnnu þrjá leiki og töpuðu einum. Daginn eftir var síðan spilaður vináttuleikur við +35 ára lið Epse FC í samnefndum bæ. Þar býr Alfons Sampsted með fjölskyldu sinni en það var einmitt hann sem kom tengslunum á við heimaliðið. Liðin skildu jöfn 4:4 eftir hörkuleik.
Einn af hápunktum ferðarinnar var kynnisferð á heimavöll Go Ahead Eagles í bænum Deventer en þar leika Blikarnir Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson listir sínar í knattspyrnuliðið heimamanna. Tekið var á móti Blikunum með pompi og pragt enda Íslendingar vel kynntir hjá félaginu. Í lokin heilsuðu Alfons og Stefán Ingi upp á Blikana og árituðu treyjur og varning í stórum stíl.
Lokadaginn lá leið Blikana til bæjarins Nejmegen en þar atti heimaliðið kappi við GEA í hörkuleik. Blikarnir tveir í liði gestanna, Alfons og Stefán Ingi, voru báðir í byrjunarliði síns liðs. En Willum Þór varð að bíta í það súra epli að sitja á bekknum allan leikinn. Stefán Ingi átti hins vegar stórleik og skoraði mark GEA í 1:1 jafnteflisleik.
Fyrir árangur sinn var Stefán Ingi valinn í lið vikunnar í hollensku úrvalsdeildinni. En forráðamenn GAE þökkuðu sínum prísa fyrir að Willum spilaði ekki á móti þeim því hann lék áður með liðinu og að sögn þeirra er hann einn besti erlendi leikmaður sem hefur spilað með Go Ahead Eagles!
Það var mjög fjölbreyttur hópur eldri Blika sem fór í þessa ferð. Elsti leikmaðurinn, Valþór Þorgeirsson, er 69 ára en yngsti leikmaðurinn var Pétur Andrésson 28 ára. Hann lék á sérstakri undanþágu enda er hann gömul sál. Þegar er byrjaði að leggja drög að næstu keppnisferð old-boys Blika. Stefnt er að því að fara til Portúgal næsta haust og taka þátt í alþjóðlegu móti í suðurhluta landsins. Allir eldri knattspyrnumenn eru velkomnir í ferðina!
Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni.
AP