T
KA
2 1
Breiðablik
A-deild 22. umferð Greifavöllurinn 06.09.2026
1
7

Taphrina Blikaliðsins hélt áfram á Akureyri í gær. Nú lutum við í gras gegn KA-mönnum 2:1 og höfum ekki unnið knattspyrnuleik síðan 27. júlí. En nú er ekki staður og stund til að kryfja ástæður þessa slaka gengis undanfarnar vikur. Nú þurfa allir að snúa bökum saman og undirbúa bikarúrslitaleikinn á Laugardalsvelli á föstudaginn. Leikmenn þurfa að hysja upp um sig buxurnar, þjálfarateymið  þarf að finna réttu vinningsblönduna og stuðningsmenn þurfa að mæta sem einn maður í stúkuna og hvetja Blikaliðið til sigurs. 

Það er ljóst að allir eru hundóánægðir með spilamennskuna og úrslitin. Það gefst tími eftir bikarúrslitaleikinn til að kryfja þau mál til mergjar. Nú þarf að þétta raðirnar, styðja strákana okkar og sýna fyrir hvað Breiðablik stendur!

Andstæðingar okkar munu mæta mjög vel á föstudaginn og við verðum að sýna að við komum úr mun stærra sveitarfélagi og með miklu meiri vinningshefð.

Látum heyrast ,,Áfram Breiðablik“ í Laugardalnum þannig að það heyrist alla leið í Kópavoginn!

Það mun skila sér til Blikaliðsins út á vellinum og þá förum við ánægð heim á föstudagskvöldið!

Áfram Blikar- alltaf- alla leið!

AP