Andrés Pétursson nefndi mig til sögunnar í umsögn um síðasta leik og fannst kjörið að ég tæki að mér að skrifa um leikinn við Stjörnuna. Það er auðvitað ekki hægt að segja nei við Andrés.
Það er ekki mikið um leikinn að segja.
Byrjunarliðið leit reyndar ekki illa út - þeas ekki fyrr en leikurinn byrjaði.
Fyrstu 5 mínútur leiksins var Blikaliðið varla með. Nú var ég ekki inni í klefa fyrir leik, kannski var stemmingin bara að fyrir rólegu og afslöppuðu kvöldi í góðum félagsskap.
Eitthvað skánaði þetta en datt svo niður þegar leið á hálfleikinn. Tvö ódýr mörk, fyrst frír skalli við markteig eftir horn og gestirnir röltu óáreittir inn í vítateig við að skora það seinna. Ég kann ekki við að skrifa hvað ég hugsaði við að horfa á þetta. Staðan hefði auðveldlega getað verið verri eftir fyrri hálfleikinn.
Í síðasta heimaleik allt annað Blikalið út í seinni hálfleikinn, skoraði tvö mörk, átti inni fyrir fleiri mörkum og amk. stigi. Þannig að það var allt í lagi að leyfa sér að vona.
Og vissulega var seinni hálfleikurinn mun skárri, fyrr hefði nú mátt vera. En það vantaði samt mikið upp á. Með fullri virðingu fyrir gestunum þá er þetta lið sem Breiðablik á að vinna örugglega. Tvisvar var ég að fara að fagna marki og nokkrum sinnum til viðbótar hefði boltinn dottið inn á góðum degi. En ekkert mark hjá Blikum í fyrsta skipti í tæp þrjú ár, þetta gerðist síðast 8. október 2023 - einmitt í 0-2 tapi gegn Stjörnunni.
Það var jú smá spenna að fylgjast með mávunum, þeir flugu svo lágt að ég átti alveg eins von á að einhver þeirra yrði skotinn niður – nóg var um háloftaspyrnur, að mestu í boði gestanna – Jói útherji skaut niður önd í lagi Ómars Ragnarssonar þegar ég var eitthvað yngri – mávur hefði sennilega verið líklegri – en um leið erfiðara að finna rím! Tveir mávar komu sér meira að segja fyrir í makindum á vellinum – en það var á vallarhelmingi Blika í seinni hálfleik og þeir gátu tekið því rólega, boltinn var hvergi nærri.
Í öllu falli þá átta ég mig ekki á því hvað er að hjá Blikum.
Ég veit að það hefur verið mikið um meiðsli – en hef ekki hugmynd um hvers vegna, hvort þetta er ótrúleg óheppni eða hvort þetta er til marks um að eitthvað sé að.
Sumir leikmenn eru kannski ekki komnir í gott leikform eftir meiðsli, en það er erfitt að komast í leikform nema mæta til leiks í fullri alvöru. Jú, fyrirliðinn er stöðugt að nálgast.
Stundum virkar liðið einfaldlega áhugalaust tímunum saman. Ég veit að það getur verið erfitt að „gíra sig upp“ í leik sem skiptir engu máli þegar stórleikur er framundan.. en sá stórleikur verður erfiður ef liðið er ekki í leikformi – og svona frammistaða er ekki að skila liðinu í leikform.
Þar fyrir utan finnst mér ekkert sérstaklega gaman að sjá liðið reyna stöðugt langar sendingar fram völlinn upp á von og óvon – ég veit að stöku sinni þarf að breyta til og stundum þarf að brjóta upp. En þetta er ekki sá fótbolti sem ég vil sjá Blikana spila reglulega - þetta lagaðist mikið í seinni hálfleik, svo því sé haldið til haga.
Vissulega komu kaflar það sem liðið sýndi hvað það getur og hvað það kann – en allt of margar rangar ákvarðanir, auðveldar sendingar sem mistókust, hik þegar hefði mátt keyra áfram – og jafnvel eins og leikmenn þekktu ekki hvern annan og hefðu aldrei spilað saman áður.
Ég hef aldrei verið talsmaður þess að skipta um þjálfara á miðju tímabili, ofmetin aðgerð og aðeins réttlætanleg í undantekningar tilfellum. Ég var til dæmis mjög ósáttur við að Dóri var látinn fara í fyrra – hafði efasemdir um nýjan þjálfara, svona í bland við bjartsýni. Og ég tek ekki undir að það sé rétt að breyta til núna, þó mikið sé undir og margir að kalla eftir breytingum. Ég þekki auðvitað ekkert til „innan herbúða“ liðsins, mögulega er eitthvað mikið að – en kalla kannski frekar eftir sameiginlegri „brókargirðingu“, bæði þjálfara og leikmanna.
-Valgarður Guðjóns