Það er ljóst að allir eru hundóánægðir með spilamennsku og úrslit strákanna undanfarið en nú þarf að þétta raðirnar, styðja strákana okkar og sýna fyrir hvað Breiðablik stendur! Andstæðingar okkar munu mæta mjög vel á föstudaginn og við verðum að sýna að við komum úr mun stærra sveitarfélagi og með miklu meiri vinningshefð. Látum heyrast ,,Áfram Breiðablik“ í Laugardalnum þannig að það heyrist alla leið í Kópavoginn! Það mun skila sér til Blikaliðsins út á vellinum og þá förum við ánægð heim á föstudagskvöldið! Áfram Blikar- alltaf- alla leið!
BIKARVIKAN ER HAFIN
Stóri dagurinn nálgast! Á föstudaginn mætum við Aftureldingu í bikarúrslitum á Laugardalsvelli og við ætlum að gera almennilega Blikaviku úr þessu.
PYLSUGRILL MEÐ LEIKMÖNNUM
Leikmenn meistaraflokks grilla pylsur fyrir Blika á morgun, þriðjudag, við stúkuna á Eikarvellinum kl. 16:30. Pylsurnar eru fríar á meðan birgðir endast.
BIKARVIKA Í BLIKABÚÐINNI
Tilvalið að græja sig upp fyrir úrslitaleikinn - við ætlum að mála stúkuna græna!
Afsláttur af öllum Nike- og Kyndilvörum alla vikuna
Blikabúðin er opin mánudag - fimmtudag 15:00 - 18:00
UPPHITUNARPARTÝ Á LEIKDAG
Við byrjum föstudaginn saman í Þróttaraheimilinu áður en haldið er á völlinn. Húsið opnar kl. 16:00.
Happy hour milli 16:00 - 17:00
Óli Kristjáns
Herra hnetusmjör
⚽️ Knattþrautir
Brasserie Kársnes
Bæjarins beztu
Afturelding - Breiðablik
Föstudagur 11. september
Laugardalsvöllur
kl. 19:00
Tryggðu þér miða á midasala.ksi.is eða í appinu HÉR.
Áfram Breiðablik!
#eittfyrirklúbbinn
Hilmar Jökull með skilaboð á Grænir í Gegn ....
Núna er ég að fara á fullt í það að peppa menn í Kópa fyrir þennan blessaða bikarúrslitaleik og ég verð satt best að segja að ég er meira stressaður fyrir stemningunni í stúkunni en frammistöðunni á vellinum. Það er allt í blússandi botni hjá Aftureldingu og stemningin í algleymingi en við erum bara að spila leik eftir leik með færri stuðningsmönnum en síðustu ár og án nokkurs skemmtanagildis eða árangurs. Ég hef ekki trú á neinu öðru en að strákarnir gangi út á völl að fimm dögum liðnum með brjóstkassann út og slátri Aftureldingu en við sem heima sitjum og tuðum skulum gjöra svo vel og sýna Blikahjartað, og ekki láta það sjást að kjúklingabærinn yfirtaki Laugardalsvöll á föstudaginn á móti fjölmennasta íþróttafélagi landsins.
Mætum eftir 5 daga - Kjörnum reiðina í stuðning - Vinnum þennan bikar!
Jól í september!
Blikar koma!
Bikarsaga Blika árið 1971
Meistaraflokkur Breiðabliks árið 1971
Efri röð frá vinstri: Sölvi Óskarsson þjálfari, 29 ára, Trausti Hallsteinsson, 23 ára - útherji, Ríkharð Örn Jónsson, 21 árs - framvörður, Sigurjón Valdimarsson, 22 ára (lék ýmsar stöður), Þór Hreiðarsson, 21 árs - framvörður, Einar Þórhallsson, 19 ára - framvörður, Helgi Helgason (Basli), 19 ára - bakvörður, Guðmundur Þórðarson, 26 ára - miðherji, Haraldur Erlendsson, 26 ára - framvörður, Páll Bjarnason - formaður knattspyrnudeildar.
Neðri röð frá vinstri: Heiðar Breiðfjörð, 21 árs - framvörður, Guðmundur H. Jónsson, fyrirliði, miðvörður, Gissur Guðmundsson, 21 árs - markvörður, Ólafur Hákonarson, 19 ára - markvörður, Magnús Steinþórsson, 21 árs - bakvörður, Bjarni Bjarnason, 20 ára - miðvörður. Á myndina vantar: Steinþór Steinþórsson, 20 ára (bróðir Magnúsar) - bakvörður, Hinrik Þórhallsson, 17 ára (bróðir Einars), - útherji, Gunnar Þórarinsson, 22 ára, Karl Steingrímsson, 24 ára - útherji, Ólaf Friðriksson, 19 ára - útherji, Ómar Guðmundsson, 19 ára - markvörður.
Mynd: Gunnar Steinn Pálsson
Til þessa hafa Blikar þrisvar leikið til úrslita í Bikarkepnni KSÍ: 1971, 2009, 2018 og unnið titilinn einu sinni (2009). 1962 Fyrsti sigur karlaliðs Breiðabliks í Bikarkeppni KSÍ kemur eftir þriggja leikja rimmu Reykjavíkur Víkinga. Á þessum tíma var fyrirkomulagið þannig að úrslit þurfti efir venjulegan leiktíma. Fyrsti leikur liðanna fór 0:0. Annar leikur liðanna fór 3:3. Breiðablik vann þriðja leikinn 3:0 og komst áfram í næstu umferð.
Um bikarkeppni KSÍ o.fl.
Bikarkeppnin var fyrst leikin á Íslandi árið 1960. Breiðablik hefur tekið þátt í bikarkeppni KSÍ óslitið frá upphafi keppninnar. Breiðablik tekur fyrst þátt í knattspyrnumóti á vegum KSÍ árið 1957 - félagið sendir ekki lið til keppni í mótum árin 1958 og 1959 - órofin þáttaka Breiðabliks á knattspyrnumótum hefst því árið 1960.
Bikarúrslit 1971
Eftir 13 fyrstu ár knattspyrnudeildar í 2. deild spilar Breiðabliksliðið í 1. deild í fyrsta sinn með mjög gott lið. Blikarnir fara all leið í Bikarkeppni KSSÍ og spila úrslitaleik við Reykjavíkur Víkinga. Leiðin í úrslitaleikinn gegn Víkingum var ekki auðveld. Blikar unnu lið Keflvíkinga 1-2, Val 2-1 og Fram 1-0 en töpuðu úrslitaleiknum gegn Víkingum 1-0.
Slóð í bikarleiki Breiðabliks 1971.
Gylfi Steinn Gunnarsson hefur orðið
"Nú þegar tæp þrjú dægur eru í bikarúrslit hjá Ungmennafélaginu Breiðabliki, þeim þriðju á mínu æviskeiði hingað til, er ekki úr vegi að rifja upp þessa spólu er ég klippti saman við það tilefni.
Þetta var fyrir tíma almennrar háskerpu en þó má sjá þarna 60 ramma slómó HD inn á milli þökk sé góðum vini er lánaði fokdýran fagmannagrip til verksins.
Tónlistinni er stolið og splæst saman úr þremur verkum meistara Hans Zimmer. Ekki segja neinum.
Endirinn finnst mér nokkuð vel heppnaður varðandi músik og mynd. En vissulega er maður seint dómari í eigin sök."
/PÓÁ