PYLSUGRILL MEÐ LEIKMÖNNUM

Leikmenn meistaraflokks grilla pylsur fyrir Blika í dag, þriðjudag, við stúkuna á Eikarvellinum kl. 16:30.  Pylsurnar eru fríar á meðan birgðir endast.

BIKARVIKA Í BLIKABÚÐINNI

Tilvalið að græja sig upp fyrir úrslitaleikinn - við ætlum að mála stúkuna græna! Afsláttur af öllum Nike- og Kyndilvörum alla vikuna. Blikabúðin er opin mánudag - fimmtudag 15:00 - 18:00

Hilmar Jökull á Grænir í gegn: Setjum countdown af stað! 5 dagar í leik og við ætlum að pósta nýjum fána á hverjum degi fram að leik.

Allir á völlinn! Blikar koma!

Sjá 5 dagar í leik fánann HÉR og 4 dagar í leik fánann HÉR

Úrslitaleikur á Laugardalsvelli 2018

Byrjunarliðið gegn Stjörnunni í úrslitaleiknum árið 2018.

Aðeins tveir leikmenn í núvarandi leikmannahópi Breiðabliks tóku þátt í úrslitaleiknum gegn Stjörnunni árið 2018, Andri Rafn Yeoman og Viktor Örn Margeirsson. Báðir voru í byrjunarliðinu hjá Ágústu Gylfasyni. 

Eftir úrslitaleikinn 2018 valdi Fótbolti.net markmenn liðanna þá bestu í leiknum.

1. Haraldur Björnsson - Halli var frábær í kvöld, átti rosalega markvörslu í lok venjulegs leiktíma og ver svo víti í vítakeppninni. 

2. Gunnleifur Gunnleifsson - Gulli og Halli voru að berjast um þennan titil en Gulli átti 3-4 rosalegar vörslur í leiknum, ekki að sjá að hann sé 43 ára.

"Stjörnumennirnir" Eyjólfur Héðinsson og Haraldur Björnsson eru starfsmenn Breiðabliks í dag. Eyjólfur er yfirmaður knattspyrnumála og Haraldur er markmannsþjálfari meistaraflokks karla. 

Um bikarúrslit Breiðabliks 1971 og 2009

Breiðablik 1971: Sumarið 1970 rann upp langþráð stund hjá Blikum þegar meistaraflokkur karla sigraði í 2. deild og myndi spila meðal þeirra bestu í fyrsta sinn árið 1971. Glæstur árangur náðist í bikarkeppni KSÍ árið 1971 en Breiðablik spilaði til úrslita um bikarmeistaratitilinn við Víkinga á Melavellinum 9. nóvember 1971. Á leið sinni í úrslitaleikinn lögðu nýliðarnir í 1. deild ekki lakari andstæðinga en nýbakaða Íslandsmeistara ÍBK, Val  og Fram. Leikurinn, fór fram á Melavellinum þriðjudaginn 9. nóvember, átti að fara fram helgina áður en var frestað vegna vallaraðstæðna. Gefum blaðamanni Morgunblaðsins orðið“ Það vakti strax athygli manns í fyrrakvöld, að starfsmenn vallarins höfðu næstum gert kraftaverk á vellinum, því hann var orðinn bara nokkuð þokkalegur. Að vísu nokkuð linur, en þó ekki til muna illa farinn til að leika knattspyrnu á honum”. Eins og nú voru vallaraðstæður voru líka umræðuefni fyrir tæpum 50 árum. Og á þeim tíma gat ný íþróttafrétt í dagblaði verið 2-3 daga gömul. Leikurinn fór fjörlega af stað. Blikar fengu gott tækifæri strax á 2. mín þegar boltinn sleikti þverslánna eftir skot Gunnars Þórarinssonar. Aftur fáum við tækifæri á 15. mín þegar Einar Þórhallsson skallaði bolatann rétt fram hjá stönginni. Víkingar skora sigurmark leiksina á 21. mín þegar Jón Ólafsson stangar boltann í netið eftir aukaspyrnu-fyrirgjöf Guðgeirs Leifssonar.

S
Fram
6 7
Breiðablik
Bikarkeppni KSÍ Úrslit. Staðan 1-1 eftir venjulegan leiktíma og 2-2 eftir framlengingu. Blikar vinna vítaspyrnukeppnina 4-5. Laugardalsvöllur 03.10.2009
14
2
5

Breiðablik 2009: Blikar fóru alla leið í Bikarkeppni KSÍ 2009 - VISA-bikarnum  og unnu fyrsta stóra knattspyrnutitilinn í sögu félagsins í karlaflokki. Eftir sigur á Hvöt og Hetti í 32-liða og 16-liða úrslitum mættu Blikar HK í útileik á Kópavogsvelli í 8-liða úrslitum í ekta grannaslag. Undanúrslitaleikurinn gegn Keflavíkingum á Laugardalsvelli 13. september vannst 3-2 með mörkum frá Elfari Frey, Kristni Jónssyni og Guðmundi Péturssyni. Í hinum undanúrslitaleiknum unnu Framarar KR-ingar 1-0 með marki frá Joesep Tillen á 78. mín. Sjálfur bikarúrslitaleikurinn fór svo fram á Laugardalsvelli í fallegu haustveðri laugardaginn 3. október kl.14:00 að viðstöddum 4766 áhorfendum. Alferð Finnbogason kom Blikum yfir á 60. mín en Samuel Tillen jafnaði á 73. mín. Jafnt 1-1 eftir venjulegan leiktíma. Í framlengingu skorðu bæði lið mark úr vítaspyrnu; Samuel Tillen fyrir Fram á 97. mín en Alfreð Finnbogason fyrir Blika á 102 mín. Jafnt 2-2 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni sem Breiðablik vann 5-4. Sjá: Breiðablik bikarmeistari karla í fyrsta sinn eftir sigur í vítaspyrnukeppni.

Leið Blika í úrslitin á Laugardalsvelli 2018

32-liða úrslit: Breiðablik fór í heimsókn upp í Breiðaholt og lék þar við Leiknismenn í 6-spjalda leik sem Blikar unnu 3-1. Nánar hér

16-liða úrslit: Blikar sigruðu lið KR-inga á Kópavogsvelli með marki Olivers Sigurjónssonar af 24 metra færi strax á 5.mín leiksins Nánar hér Stjörnumenn fengu heimaleik gegn 1. Deildarliði Þróttar frá Reykjavík og unnu auðveldan 5-0 sigur.

8-liða úrslit: Valur - Breiðablik á Origo vellinum. Blikar unnu leikinn 1-2. Sigurmarkið kom ekki fyrr en á 92.mín. Nánar hér 

Undanúrslit: Blikar fengu 1. Deildarliði Víkinga frá Ólafsvík í heimsón á Kópavogsvöll. Þetta var leikur fyrir sögubækurnar. Bæði lið skoruðu mark í venjulegum leiktíma. Blikar skora svo sjálfsmark á 105.mín í framlengingu og það stefndi í Víkingssigur á Kópavogsvelli þegar Brynjólfur Darri Willumsson, 18 ára Breiðabliksmaður, skoraði jöfnunarmark Blika á 120.mín. Blikar unnu svo vítaspyrnukeppnina 4-2 og voru komnir í úrslit Mjólkurbikarsins. Nánar hér

ÚRSLIT

T
Stjarnan
4 1
Breiðablik
Bikarkeppni KSÍ Úrslit - Staðan 0-0 eftir framlengingu. Stjarnan vinnur ABBA vítaspyrnukeppni 4-1. Laugardalsvöllur 15.09.2018
3
18

/PÓÁ