BIKARMEISTARAR 2009

Á mynd frá vinstri: Ólafur H. Kristjánsson þjálfari, Ólafur Pétursson markmannsþjálfari, Ólafur Björnsson formaður meistaraflokksráðs, Úlfar Hinriksson, Örn Örlygsson liðsstjórn, Arnar Sigurðsson, Elfar Freyr Helgason, EV, Haukur Baldvinsson, Vignir Jóhannesson, Alfreð Finnbogason, Sigmar Ingi Sigurðsson, Einar Kristján Jónsson formaður knattspyrnudeildar, Guðmundur Pétursson, Ágúst Arnarson, Evan Schwartz, Jón Magnússon liðsstjórn, Kristinn Jónsson, Trausti Þór Ósvaldsson liðsstjórn, Reynir Magnússon, Andri Rafn Yeoman, Árni Kristinn Gunnarsson, Kristinn Steindórsson, Kári Ársælsson fyrirliði, Guðmann Þórisson. Finnur Orri Margeirsson, Olgeir Sigurgeirsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Þórður Magnússon sjúkraþjálfari, Guðmundur Kristjánsson, Arnar Grétarsson.

Sjá einnig: Bikarvika Blika 2026 & Bikarúrslit 1971 og Bikarvika Blika 2026 & Bikarúrslit 2018

Hvað er framundan

BIKARVIKA Í BLIKABÚÐINNI - Tilvalið að græja sig upp fyrir úrslitaleikinn - við ætlum að mála stúkuna græna! Afsláttur af öllum Nike- og Kyndilvörum alla vikuna. Blikabúðin er opin 15:00 - 18:00 í dag, fimmtudag. 

UPPHITUNARPARTÝ Á MORGUN

Við byrjum föstudaginn saman í Þróttaraheimilinu áður en haldið er á völlinn. Húsið opnar kl. 16:00. Happy hour milli 16:00 - 17:00. Óli Kristjáns. Herra hnetusmjör. Knattþrautir. Brasserie Kársnes. Bæjarins beztu. 

Afturelding - Breiðablik
Föstudagur 11. september
Laugardalsvöllur - kl. 19:00

Tryggðu þér miða á midasala.ksi.is eða í appinu.

Hilmar Jökull með ákall til stuðningsmanna - „Hvar er Blikahjartað þá?" | Fotbolti.net

Fánaniðurtalning Hilmars Jökuls heldur áfram. 

Sjá 3 dagar í leik fánann HÉR og 2 dagar í leik HÉR

Óli Skúla þjálfari og Höskuldur fyrirliði með skilaboð til allra stuðningsmanna

 PYLSUGRILL MEÐ LEIKMÖNNUM - Það var fín stemming í fyrradag þegar leikmenn meistaraflokks grilluðu pylsur fyrir Blika við stúkuna á Eikarvellinum. 

Bikarmeistaratitillinn 2009

Blikar fóru alla leið í Bikarkeppni KSÍ 2009 - VISA-bikarnum  og unnu fyrsta stóra knattspyrnutitilinn í sögu félagsins í karlaflokki. Eftir sigur á Hvöt og Hetti í 32-liða og 16-liða úrslitum mættu Blikar HK í útileik á Kópavogsvelli í 8-liða úrslitum í ekta grannaslag. Undanúrslitaleikurinn gegn Keflavíkingum á Laugardalsvelli 13. september vannst 3-2 með mörkum frá Elfari Frey, Kristni Jónssyni og Guðmundi Péturssyni. Í hinum undanúrslitaleiknum unnu Framarar KR-ingar 1-0 með marki frá Joesep Tillen á 78. mín. Sjálfur bikarúrslitaleikurinn fór svo fram á Laugardalsvelli í fallegu haustveðri laugardaginn 3. október kl.14:00 að viðstöddum 4766 áhorfendum. Alferð Finnbogason kom Blikum yfir á 60. mín en Samuel Tillen jafnaði á 73. mín. Jafnt 1-1 eftir venjulegan leiktíma. Í framlengingu skorðu bæði lið mark úr vítaspyrnu; Samuel Tillen fyrir Fram á 97. mín en Alfreð Finnbogason fyrir Blika á 102 mín. Jafnt 2-2 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni sem Breiðablik vann 5-4. Sjá: Breiðablik bikarmeistari karla í fyrsta sinn eftir sigur í vítaspyrnukeppni.

S
Fram
6 7
Breiðablik
Bikarkeppni KSÍ Úrslit. Staðan 1-1 eftir venjulegan leiktíma og 2-2 eftir framlengingu. Blikar vinna vítaspyrnukeppnina 4-5. Laugardalsvöllur 03.10.2009
14
2
5
/PÓÁ