Strákarnir okkar létu ekki hrakspár fjölmiðla og sjálfskipaðra sérfræðinga hafa áhrif á sig og lönduðu bikarmeistaratitlinum fyrir árið 2026! Það voru þeir Höskuldur Gunnlaugsson og Kristófer Ingi Kristinsson sem settu mörkin tvö sem tryggðu okkur 2:1 sigur á gömlu UMSK-félögum okkar úr Aftureldingu.
Það hefur gustað hressilega um strákaliðið okkar undanfarnar vikur og höfðu þeir gengið um dimman dal í aðdraganda þessa leiks. Fyrir viku síðan höfðu fáir trú á því að Blikaliðið gæti rifið sig upp eftir slakt gengi í síðustu leikjum. En með mikilli vinnu strákanna okkar á æfingum og góðri markaðssetningu hjá forystumönnum Breiðabliks fór landið að rísa. Miðasalan tók að glæðast Blikamegin á miðvikudag og fimmtudag þrátt fyrir massíva auglýsingaherferð fyrirtækja í Mosó. Blikastrákarnir grilluðu ofan í stuðningsmenn sína og áskorun fyrirliðans Höskuldar Gunnlaugssonar til áhangenda Blika hitti greinilega í mark. Grænklæddir Kópavogsbúar fjölmenntu í Laugardalinn og trofylltu Þróttaraheimilið fyrir leikinn.
Þar stjórnuðu þeir fóstbræður, Hilmar Jökull og Sindri, upphitun stuðningsmanna með glæsibrag eins og þeirra var von og vísa. Og Örn Örlygsson, Jón Jóhann Þórðarson ásamt lækninum í sölunni Helgu Katrínu Jónsdóttur mokuðu út treflum, treyjum og öðrum Blikavarningi eins og engin væri morgundagurinn. Þetta varð þess valdandi að yfir 5.600 mættu á leikinn og hefur ekki verið betri aðsókn á bikarúrslitaleik í yfir 10 ár!
Það gladdi hjörtu allra Blika að sjá að öðlingurinn og góðkunningi blikar.is. Pétur Ómar Ágústsson, var heiðursgestur knattspyrnudeildar Breiðabliks á leiknum. Það þarf vart að kynna Pétur Ómar fyrir Blikum. Hann hefur verið gríðarlega virkur stuðningsmaður félagsins í hátt i 50 ár. Það á að sæma svona menn fálkaorðu! En það er ágætt að byrja á því að heiðra hann á svona tímamótum.
Það er líka áhugavert að benda á þá sturluðu staðreynd að Blikar hafa unnið alla sína titla í hvítu frá upphafi! Fyrst þegar við unnum Fram í vítaspyrnukeppni í úrslitum bikarsins árið 2009. Árið eftir fórum við í hvítum treyjum í Garðabæinn og tryggðum okkur Íslandsmeistaratitilinn. Svo þegar við flengdum Víkinga 0:3 á táravellinum þeirra í Fossvoginum árið 2024 vorum við í hvítu Blikatreyjunni. Bíddu, bíddu, en hvað með Íslandsmeistaratitilinn árið 2022 gætu einhverjir spurt! Jú, en þá urðum við sófameistarar þvi Stjarnan lagði Víkinga að velli 2:1 mánudaginn 10. október 2022 og þar með var ljóst að ekkert lið gæti náð okkur. Þá sátu Blikarnir í hvíta sófanum að fylgjast með leiknum.
2009: Bikarmeistarar - 2010: Íslandsmeistarar - 2024: Íslandsmeistarar
Blikar fjölmenntu í Smárann eftir úrslitaleikinn og fögnuðu nýkrýndum Mjólkurbikarmeisturum með flugeldum og fagnaðarlátum. En strákarnir okkar gátu ekki leyft sér að djamma mjög lengi því strax á þriðjudaginn halda þeir upp í Úlfarsárdal til að mæta Frömurum í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildarinnar. Þeir bláklæddu hafa farið illa með okkur í sumar og nú getum við stresslaust farið í leikinn og sýnt þeim hvernig alvöru bikarmeistarar spila!
Áfram Blikar- alla leið!
AP