Eftir 12 umferðir í Besta deildinni eru ÍA og Breiðablik á svipuðum slóðum á stigatöflunni og leikurinn á laugardaginn lofar hörku baráttu. Blikar sitja í 4. sæti með 19 stig á meðan ÍA er í 7. sæti með 15 stig.
Sagan & Tölfræði
Innbyrðis leikir Breiðabliks og ÍA í öllum mótum frá fyrsta leik árið 1965 eru 132 leikir. Skagamenn leiða með 66 sigra gegn 43 - jafnteflin eru 23.
Frá 1965 til 2000 unnu Skagamenn nánast alla mótsleiki liðanna þ.m.t. 20 leiki af 35 innbyrðis leikjum liðanna í Litlu bikarkeppninni sem Albert Guðmundsson átti stóran þátt í að setja á laggirnar, en hann var á þeim tíma spilandi þjálfari Hafnfirðinga (ÍBH). Albert gaf farandbikar til keppninnar. Mótið var hugsað sem æfingamót fyrir „utanbæjarlið" áður en Íslandsmótið hæfist, til mótvægis við Reykjavíkurmótið. Keppnin stóð yfir í 34 ár - frá 7. maí árið 1961 og lauk í maí 1995. Samtals voru spilaðir 850 leikir í Litlu bikarkeppninni. Árið 1996 hófst síðan nýtt mót, Deildabikarkeppni KSÍ (Lengjubikarinn), og hún tók því raun við af Litlu bikarkeppninni en þar voru hins vegar öll lið með, utan Reykjavíkur sem innan. Skagamenn sigruðu Breiðablik 3-1 í fyrsta úrslitaleik Deildabikarsins sem leikinn var á grasvellinum í Kaplakrika í maí 1996.
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild frá upphafi eru 67. Skagamenn leiða með 35 sigra gegn 23 - jafnteflin eru 9.
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild á heimavelli ÍA á Skaganum eru frá upphafi eru 32. Skagamenn leiða með 19 sigra gegn 8 - jafnteflin eru 5.
20 ár samfellt í efstu deild
Breiðablik spilaði fyrst KSÍ mótsleik í 2.deild árið 1957. Breiðablik vann sig fyrst upp í efstu deild (1.deild) eftir yfirburðatímabil í 2.deildinni árið 1970. Frá 1971 hefur Blikaliðið leikið 40 tímabil, af 55 mögulegum, í efstu deild þar af samfellt 20 ár í röð eftir sannfærandi sigur í næst efstu deild árið 2005.
Innbyrðis viðureignir Breiðabliks og ÍA í efstu deild árin 2006-2026 eru 29 leikir.
Blikar leiða með 16 sigra gegn 5 - jafnteflin eru 8.
Innbyrðis viðureignir Breiðabliks og ÍA í efstu deild á Akranesi árin 2006-2025 eru 13 leikir.
Blikar leiða leiða með 6 sigra gegn 4 - jafnteflin eru 3.
Síðustu 5 leikir liðanna í efstu deild á Akranesi
Hópurinn
Hjá heimaliðinu er Gísli Eyjólfsson sem á langan og glæsilegan í grænu Breiðablikstreyjunni. Hann er uppalinn Bliki og spilaði 262 mótsleiki fyrir félagið. Markvörður Skagamann, Jón Sölvi Símonarson, er uppalinn hjá Breiðabliki, en ÍA fékk Jón Sölva til sín á undanþágu vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar. Okkar maður Viktor Örn Margeirsson lék sem lánsmaður hjá ÍA hálft tímabil árið 2017.
Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Sjá leikmenn Breiðabliks 2026.
Stuðningsmaðurinn
SpáBliki leiksins gegn ÍA er fæddur og uppalinn Kópavogsbúi. Hann ólst upp á Löngbrekku 8 og Lyngbrekku 6 sem litlir guttar spiluðu við mikið fótbolta á Heiðarvelli upp við Víghól. Hann spilaði upp alla yngri flokka Breiðabliks, spilaði lítillega með unglingalandsliðinu. Eftir að ég hætti að spila með Blikunum vegna þess að ég var kominn með konu og barn fór ég að spila með Augnabliki og var leikja hæstur leikmanna þess liðs meðan það var og hét.
Mynd til vinstri: Þrír smáir en knáir úr fjórða flokki 1974. Þorsteinn Hilmarsson fyrir miðju með tvíburana Sigurð og Guðmund Halldórssyni til beggja handa. Miðmynd: Hið margfræga lið Augnabliks á leið í Íslandsmót innanhúss árið 1985. Neðri röð f.v.: Heiðar Breiðfjörð, Sigurður V. Halldórsson, Gunnlaugur Helgason og Viðar Gunnarsson. Efri röð f.v.: Andrés Pétursson, Helgi ,,Basli" Helgason, Pétur Halldórsson, Jón Orri Guðmundsson og Guðmundur Halldórsson. Mynd til hægri: Galsaleikur á Kópavogsvelli á upphafsárum Augnabliks.
Í minningunni um þessa gömlu góðu daga koma upp nöfn eins og Valdi gamli Valdimarsson þar sem við Siggi bróðir unnum með á íþróttavöllunum ásamt Gissa Guðmunds og Valda yngri. Mínir þjálfarar hjá Blikum voru Guðmundur Þórðarson - Gissur Guðmundsson og Róbert Jónsson ( Valsari ) og Jón Hermannson þegar ég æfði með meistaraflokki.
Leikurinn á móti ÍA á laugardaginn fer með sigri okkar manna 2-0
Blikakveðja!
SpáBliki leiksins Guðmundur Halldórsson
Dagskrá
Flautað verður til leiks á Skaganum kl.14:00 á laugardaginn.
Miðasala á leikinn er á: Stubb
Mætum í stúkuna á Akranesi og hvetjum okkar menn til sigurs.
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
PÓÁ
Klippur frá síðustu heimsókn okkar manna upp á Skaga sem var í 20. umferð 11. september í fyrra: