KR - BREIÐABLIK

ÚRSLITAKEPPNI - EFRI HLUTI

LAUGARDAG - 14:00!

MEISTARAVELLIR

 

Miðasala á leikinn er á: STUBB

27. og síðasta umferð Bestu deildar karla verður leikin á laugardaginn. Víkingur hefur þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn og KR annað sætið. Okkar menn eru í fimmta en get a með sigri tryggt sér fjórða sætið ef ÍA misstígur sig gegn Keflavík. 

Jafnt á þessu ári

22.05.2026. Felldir á eigin bragði

"Fyrir þennan heimaleik Breiðabliksstráka á móti KR var ég svolítið hræddur um montréttinn. Það verður að viðurkennast. Mikill sláttur búinn að vera á gaurunum úr ranga Vesturbænum, ekki búnir að tapa leik í deild. Okkar menn að spila svosem keimlíka taktík en við bara talsvert hægar og af minni einurð og ákafa fram að þessu. Þessi munur var augljós í ægilegum æfingaleik liðanna í vor. Ekki meira um hann." Skrifar fréttaritari leiksins ... lesa meira hér 

S
Breiðablik
6 3
KR
A-deild 8. umferð Kópavogsvöllur 22.05.2026
43
3
15

16.08.2026. Skemmtilegustu leikir ársins

"Dætur mínar hafa ekki komið oft með mér á völlinn. Síðast var það líklega á EM kvenna í Hollandi, en þangað gerði stórfjölskyldan sér ferð fyrir tæpum áratug. Hún var því ekki lítil gleði gamla mannsins þegar sú eldri sýndi áhuga á að koma með á KR-Breiðablik, sen þessir leikir eiga sérstakan sess á heimilinu þar sem yðar einlægur lenti í því á lífsleiðinni að ala upp KR-inga. Og ekki nóg með það, heldur ætluðu tvær dótturdætur að slást í hópinn líka. Það eru jól og páskar þegar KR og Breiðablik eigast við og nú bættist ein stórhátíðin við. (Það er rétt að taka fram að téð dóttir mín og Eiður Gauti KópavogsKRingur eru systrabörn, þannig að það ekki alveg víst að það hafi verið ég einn sem var að trekkja á völlinn)". Skrifar fréttaritari leiksins ... lesa meira hér 

J
KR
3 3
Breiðablik
A-deild 19. umferð KR-völlur 16.08.2026
24
1
9

Innbyrðis í efstu deild 2006-2026

Leikurinn á laugardaginn verður þriðja viðureign liðanna á þessu ári og  84. viðureign liðanna í A-deild - fyrst árið 1971. Í 45 viðureignum liðanna síðustu 2 áratugi hefur KR yfirhöndina með sem nemur 2 leikjum.

Í 22 viðureignum liðanna í Frostaskjólinu er jafnt á öllum tölum.

Hópurinn

Í núverandi leikmannahópi KR eru þeir Galdur Guðmundsson, sem kom til okkar í 4. flokki frá ÍBV og spilaði 13 meistaraflokksleiki með Blikum árið 2022 og Jason Daði Svanþórsson en hann á 136 mótsleiki og 42 skorðuð mörk að baki með Blikaliðinu á árunum 2021-2024. Jason kom til Blika frá uppeldisfélaginu Aftureldingu þar sem hann spilaði 72 meistaraflokksleiki og skoraði 72 mörk á árunum 2017 til 2020. Eftir 2024 tímabilið var Jason Daður seldur til Englands. Frétt á blikar.is: Jason Daði til Englands

Þjálfari KR, Óskar Hrafn Þorvaldsson, átti farsælan tíma hjá Breiðabliki. Hann tók við liðinu fyrir tímabilið 2020 og stýrði því allt til loka Bestu deildarinnar 2023. Á þessum árum skilar Óskar Blikum 4. sæti 2020, er hársbreidd frá Íslandsmeistaratitli 2021, og leiðir liðið svo til yfirburðartitils 2022. Árið 2023 nær Breiðablik svo sögulegum áfanga — fyrsta íslenska karlaliðið til að komast í riðlakeppni UEFA.

Og okkar eini sanni Kristinn Jónsson lék með Vesturbæjarliðinu frá 2018 til 2023. Nú eru leiðir Kidda og Breiðabliks að skilja, og við þessi tímamót skrifar hann þessi hlýju kveðjuorð:

 

Bikarmeistarahópur Breiðabliks 2026

Fremsta röð f.v.: Tanja Tómasdóttir, framkvæmdastjóri, Andri Rafn Yeoman, Aron Bjarnason, Kristinn Steindórsson, Emil Pálsson, aðstoðarþjálfari, Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði, Ólafur Ingi Skúlason, aðalþjálfari, Óli Valur Ómarsson, Viktor Karl Einarsson, Dagur Örn Fjeldsted, Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar.  Miðröð f.v.: Eyjólfur Héðinsson, yfirmaður knattspyrnumála, Jón Guðni Fjóluson, aðstoðarþjálfari, Kristinn Narfi Björgvinsson, Davíð Ingvarsson, Ívar Örn Árnason, Kristinn Jónsson, Gylfi Berg Snæhólm, Anton Ari Einarsson, Valgeir Valgeirsson, Gabríel Snær Hallsson, Bjartur Orri Jónsson, Birkir Þorsteinsson, Særún Jónsdóttir, sjúkraþjálfari, Brynjar Dagur Sighvatsson, liðsstjóri.  Aftasta röð f.v.: Helgi Jónas Guðfinnsson, styrktarþjálfari, Anton Logi Lúðvíksson, Ásgeir Helgi Orrason, Arnar Bjarki Gunnleifsson, Jónatan Guðni Arnarsson, Þór Andersen Willumsson, Viktor Örn Margeirsson, Hlynur Freyr Karlsson, Kristófer Ingi Kristinsson, Þorleifur Úlfarsson, Haraldur Björnsson, markvarðaþjálfari.  Ekki á mynd: Ágúst Orri Þorsteinsson, Arnór Gauti Jónsson, Dagur Elís Gíslason, liðsstjóri. Myndataka & umsjón: Helgi Viðar Hilmarsson.

Dagskrá

Flautað verður til leiks á Meistaravöllum í vesturbæ Reykjavíkur kl. 14:00 á laugardaginn

Miðasala á leikinn er á: STUBB

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Síðasta heimsókn okkar í Frostaskjólið endaði með 3:3 jafntefli: