NÆSTI LEIKUR

ÍA - BREIÐABLIK

ÚRSLITAKEPPNI - EFRI HLUTI

SUNNUDAG - 16:00 / ÓKEYPIS AÐGANGUR

ELKEM VÖLLURINN

Blikar gerðu góða ferð upp í efri byggðir Reykjavíkur í byrjun vikunnar, þegar okkar menn unnu sprækt lið Fram í 23. umferð Bestu deildarinnar með þremur mörkum gegn einu á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. 

Fyrirsögn pistlahöfundar í umfjöllun um leikinn gegn Fram „ÞÁ ER MAÐUR ORÐINN ÓFULLUR AFTUR “ er kannski sérstök en hafa ber í huga að mikið var skrifað og spjallað um drykkju og bikarþynnku eftir Bikarsigurinn á Laugardalsvelli á föstudagskvöldið var. "Þetta var að sönnu engin flugeldasýning  hjá Blikum en það er líka ákveðin dygð að vera ókónómískur í hreyfingum: eiga þrjú skot á markið sem gefa þrjú mörk og þar með þrjú stig. Á sunnudaginn mæta okkar menn liði Akurnesinga uppi á Skipaskaga. Þangað fylgja þeim sérstakar baráttustuðkveðjur – og vonandi gleymir Ólafur Ingi ekki að gefa þeim sykurvatn í æð og súrefni fyrir leik." Allur pistillinn hér. 

Næsti leikur okkar í efri hluta úrslitakeppni Bestu deildar karla er á sunnudaginn kl. 16:00, þegar Blikar mæta ÍA á ELKEM‑vellinum á Akranesi.

24. umferð verður leikinn á laugardag og sunnudag. Reykjavíkur Víkingar get tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn gegn KR á laugardaginn. Fram getur tekið 2. sætið af KR og Skagamenn geta komist í 33 stig og Keflavík getur komist í 31 stig ...

Fyrri leikir í ár gegn ÍA 

Fyrsti heimaleikur tímabilsins í ár var 17. apríl gegn ÍA . "ÞAÐ ERU ENGAR MYNDIR Á SKORKORTINU" skrifar tíðindamaður síðunnar um þann leik eftir torsóttan sigur þar sem aðstoðarþjálfarar beggja liða fengu að líta rauða spjaldið. Pistillinn hér. 

Seinni leikurinn gegn ÍA  var á ELKEM vellinum á Akranesi 4. júlí. "Willumsson tryggði Blikum þrjú stig gegn Skagamönnum!" skrifar tíðindamaður blikar.is eftir þann leik. "Það var einkar ánægjuleg sjón þegar hinn 21 árs Dagur Örn Fjeldsted átti snilldarsendingu inn á teig Skagamanna á áttugustu mínutu leiksins og hinn 17 ára Þór Andersen Willumsson dúkkaði upp og skallaði knöttinn snilldarlega í mark heimamanna. Þrátt fyrir þunga sókn þeirra gulklæddu undir lok leiksins hélt vörn Blika velli og við héldum sigurhreifir með þrjú stig í Kópavoginn. Þetta var ekki besti leikur Blikanna á tímabilinu en okkur er í raun alveg sama því stigin komu í hús!  Pistillinn hér. 

Sagan & Tölfræði

Heildarleikjafjöldi liðanna í öllum mótum frá 1965 eru 133 leikir. Leikjafjöldi í A-deild frá 1971 eru 68 leikir. 

Aðeins einu sinni áður hafa liðin mæst í úrslitakeppninni eftir að það fyrirkomulag var tekið upp árið 2023. Sá leikur var í 23. umferð á Kópavogsvelli 23. september 2024. Blikar unnu leikinn 2:0 með mörkum frá Aroni Bjarnasyni og Ísak Snæ Þorvaldssyni.

S
Breiðablik
2 0
ÍA
A-deild 23. umferð - Efri hluti Kópavogsvöllur 23.09.2024
60
3
11

Bikarmeistarahópur Breiðabliks 2026

Breiðablik 2026

Fyrri mynd f.v.: Jón Guðni Fjóluson aðstoðarþjálfari. Ólafur Ingi Skúlason aðstoðarþjálfari, Emil Pálsson aðstoðarþjálfari. Seinni mynd: Aftari röð f.v.: Arnar Laufdal Arnarsson fjölmiðlateymi, Gestur Pálmason markþjálfi, Jón Guðni Fjóluson aðstoðarþjálfari, Emil Pálsson aðstoðarþjálfari, Dagur Elís Gíslason liðsstjórn, Ólafur Ingi Skúlason aðalþjálfari, Eyjólfur Héðinsson yfirmaður knattspyrnumála, Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari. Fremri röð f.v.: Óskar Hákonarson fjölmiðlateymi, Helgi Guðfinnsson styrktarþjálfari, Brynjar Dagur Sighvatsson liðsstjórn, Særún Jónsdóttir sjúkraþjálfari og Gunnar Birgisson leikgreinandi. 

Dagskrá

Flautað verður til leiks kl. 16:00 á á sunnudaginn á ELKEM vellinum á Akranesi. Liggur sunnudagsrúnturinn ekki upp á Skaga? Veðurspáin fyrir sunnudaginn er góð!

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Mörk og klippur frá viðureign liðanna í efri hlutanum árið 2024: