NÆSTI LEIKUR
BREIÐABLIK - VÍKINGUR R.
ÚRSLITAKEPPNI - EFRI HLUTI
FÖSTUDAG - 19:15!
EIKARVÖLLURINN
Það er komið að síðasta heimaleik strákana og það verður risa leikur! Við tökum á móti Víkingum á Eikarvellinum á morgun kl. 19:15 og við þurfum alla Blika í stúkuna. Síðast þegar við tókum á móti Víkingum þá unnum við 3-0 og við ætlum að endurtaka leikinn! Jafnframt verður Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliðinn okkar, heiðraður fyrir 400 leiki fyrir Breiðablik.
Miðasala á leikinn er á: STUBB
Leikurinn á föstudagskvöld verður fjórða og síðasta innbyrðis viðureign liðanna á þessu ári. Það er þó þegar ljóst að þau mætast aftur í Meistarakeppni KSÍ í apríl 2027, þar sem leikið verður um titilinn Meistari meistaranna og varðveislu Sigurðarbikarsins – hinum veglega bikar sem KR gaf til minningar um Sigurð Halldórsson. Meistarakeppnisleikurinn er jafnan settur viku fyrir fyrstu umferð Íslandsmótsins.
Liðin hafa tvisvar áður leikið til úrslita í Meistarakeppni KSÍ. Í Víkinni árið 2022 unnu Víkingar 1:0 sigur, en á Kópavogsvelli árið eftir voru það Blikar sem höfðu betur 3:2. Staðan er því jöfn í Meistarakeppninni.
26. umferð verður leikin um helgina. Víkingar hafa þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn, en KR getur tryggt sér 2. sætið með sigri í Keflavík. Okkar menn ætla sér hins vegar sigur gegn nýkrýndum Íslandsmeisturum á Eikarvellinum í Kópavogi.
Heimagengi Breiðabliks eftir 25 umferðir – síðustu fimm ár
Ef gengi karlaliðs Breiðabliks á heimavelli undanfarin ár er skoðað eftir 25 umferðir (þ.e. þegar tvær umferðir eru eftir), sést að Íslandsmeistaraárin 2022 og 2024 skera sig úr með afar sterkan árangur á Kópavogsvelli.
2022 – í 13 heimaleikjum eru 11 sigar, 1 jafntefli og 1 tap - stigaárangur 87% ... eitt besta heimagengi í sögu Bestu deildarinnar.
2023 – í 13 heimaleikjum eru 7 sigrar, 2 jafntefli og 4 töp - stigaárangur 59% ... sveiflukennt ár, sérstaklega á heimavelli.
2024 - í 13 heimaleikjum eru 9 sigrar, 3 jafntefli og 1 töp - stigaárangur 77% ... öflugt ár og annað Íslandsmeistaraárið á þremur árum.
2025 – í 11 heimleikjum eru 6 sigrar, 4 jafntefli, og 1 tap - stigaárangur 67% ... stöðugt gengi, þó ekki á sama toppi og 2022/2024.
2026 – í 12 heimaleikjum eru 7 sigrar, 1 jafntefli og 4 töp - stigaárangur 61% ... árangur sem endurspeglar sveiflukennt sumar og harða samkeppni í efri hlutanum.
Allt jafnt á þessu ári
Liðin hafa mæst þrisvar sinnum á árinu 2026 og staðan í innbyrðis viðureignum 2026 er 1–1–1 og markatalan jöfn, 5:5.
Áfram Blikar - bikarinn bíður!
"Sanngjarn þrjú núll sigur Breiðabliks staðreynd. Það er enginn vafi á að ef liðið kemur með þetta hugarfar, baráttu, grimmd, sigurvilja og hungur í næstu leiki í deildinni nær það að saxa vel á forskot Víkinga á næstu mánuðum. Það var mikið fagnað og partý í stúkunni. Enginn fagnaði meira en boltastrákurinn Gabríel Elías sem ég held að verði bara að taka fleiri leiki bakvið markið á næstunni. Yndislegt kvöld á Kópavogsvelli." skrifar fréttaritari ... lesa meira hér
Spyrjum að leikslokum!
"Blikaliðið lenti í kröppum dansi á Kópavogsvelli í gær og tapaði 1:4 fyrir Íslandsmeisturum Víkings. Sigur gestanna var sanngjarn en full stór miðað við gang leiksins. En það þýðir ekkert að gráta Björn bónda, heldur safna liði og leita hefnda eins Ólöf ríka Loftsdóttir sagði eftir að bóndi hennar var veginn af enskum sjómönnum árið 1467. Við mætum Víkingum aftur á sunnudaginn á Mjólkurbikarnum og þá munum við sýna Fossvogsbúum hvar Davíð keypti ölið." ... lesa meira hér
Fótbolti er ekki spilaður á pappír
"Eins og síðustu ár höfum við verið í eldlínunni í fyrsta leik mótsins. Nú heimsóttum við Víkina til að leika við firnasterka Víkinga. Spekúlantar helstu fjölmiðla og hlaðvarpa voru búnir að spá þessum liðum efstu tveimur sætunum. Undantekningarlaust vorum við Blikar settir í 2. sætið en Víkingar í það fyrsta og voru af öllum sérfræðingum sagðir vera með langsterkasta liðið. Ef fótbolti væri spilaður á pappír eða í excel skjölum þá ætti þetta Víkingslið að vinna deildina með utanfótar vinstri. En fótbolti hefur aldrei verið spilaður á pappír…" skrifar fréttaritari .... lesa meira hér
Sagan & Tölfræði
Leikurinn á föstudaginn verður 60. viðureign liðanna í A-deild.
Það er jafnt á öllum tölum í 59 leikjum liðanna í A-deild - bæði lið hafa unnið 20 leiki og jafnteflin eru 19.
Bikarkeppni
Liðin hafa mæst 13 sinnum í bikarkeppni KSÍ frá árinu 1962. Blikar leiða innbyrðis með 7 sigrum gegn 4, og tveir leikir hafa endað með jafntefli.
Í upphafi bikarkeppninnar giltu aðrar reglur en í dag. Ef leik lauk með jafntefli var settur á nýr leikur þar til úrslit fengust.
Árið 1962 mættust Víkingur og Breiðablik í 1. umferð á Melavellinum og lauk þeim leik með 0–0 jafntefli. Annar leikur var settur á 29. ágúst, og endaði sá leikur einnig með jafntefli í 6 marka viðureign.
Þriðji leikurinn fór svo fram 4. september, og þar náðu Blikar loks að brjóta ísinn og unnu 3–0 sigur.
Nánar um innbyrðis bikarleiki liðanna hér.
Úrslitakeppnin frá 2022
Leikurinn á föstudaginn verður fimmta innbyrðis viðureign Breiðabliks og Víkings á lokaspretti Bestu deildar karla frá því að úrslitakeppnin var tekin upp árið 2022. Á þessum árum hafa liðin skipt á að verða Íslandsmeistarar.
2022 í 27. umferð (29.okt) - Breiðablik og Víkingur mætast á Kópavogsvelli í lokaumferðinni. Blikar vinna 1–0 og tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn 2022.
2023 í 24. umferð (25.sep) - Blikaliðið tekur á móti nýkrýndum Íslandsmeisturum Víkings og vinnur öruggan 3–1 sigur á Kópavogsvelli.
2024 í 27. umferð (27.okt) - Blikar heimsækja Víkin í lokaumferðinni og vinna öruggan 3–0 sigur. Íslandsmeistarar 2024: Breiðablik.
2025 í 26. umferð (18.okt) - Reykjavíkur‑Víkingar koma í Kópavog og vinna leikinn 2–1. Íslandsmeistarar 2025: Víkingur R.
2026 í 24. umferð (17.okt) - Gestaliðið á laugardaginn hefur þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Blikar eru í 4. sæti og þurfa sigur til að halda Skagamönnum neðar í töflunni.
Bikarmeistarahópur Breiðabliks
Leikmannahópur bikarmeistara Breiðabliks 2026
Aftari röð f.v.: Arnar Laufdal Arnarsson fjölmiðlateymi, Gestur Pálmason markþjálfi, Jón Guðni Fjóluson aðstoðarþjálfari, Emil Pálsson aðstoðarþjálfari, Dagur Elís Gíslason liðsstjórn, Ólafur Ingi Skúlason aðalþjálfari, Eyjólfur Héðinsson yfirmaður knattspyrnumála, Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari. Fremri röð f.v.: Óskar Hákonarson fjölmiðlateymi, Helgi Guðfinnsson styrktarþjálfari, Brynjar Dagur Sighvatsson liðsstjórn, Særún Jónsdóttir sjúkraþjálfari og Gunnar Birgisson leikgreinandi.
Dagskrá
Vel tekið á móti öllum í Blikaskúrnum. Kaldur á krana í Grænu stofunni og klassísku borgararnir frá Kjöthúsinu á sínum stað í sjoppunni.
Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi kl.19:15 á föstudagskvöld.
Miðasala á leikinn er á: STUBB
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ
Síðasta heimsókn Víkinga til okkar var í undanúrslitum Mjólkurbikarsins 2026.