NÆSTI LEIKUR
BREIÐABLIK - KEFLAVÍK
ÚRSLITAKEPPNI - EFRI HLUTI
SUNNUDAG - 19:15!
EIKARVÖLLURINN
25. umferð verður leikinn á laugardag og sunnudag. Víkingar hafa þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. KR getur aukið forskotið á Fram í 4 stig í innbyrðis viðureign liðanna í Frostaskjólinu en sigri Fram leikinn er 2. sætið þeirra eftir 25 umferðir. Okkar menn þurfa sigur gegn KEF í baráttunni um 4. sætið.
Innbyrðis leikir Breiðabliks og Keflavíkur keppnistímabilið 2026
13.7.2026: Ljúfur sigur í fyrsta leik á Eikarvelli
”Strax í upphafi stýrðu Blikarnir leiknum og Anton Ari tók ekki boltann með höndum fyrr en á 18. mínútu sem segir mikið. En fótbolti snýst ekki um hversu mikið þú heldur boltanum innan liðsins – XG tölfræði og slíkt. Það var ekki mikil ógnun í leik Blikanna og litlir tilburðir til að skapa verulega hættu. „Er Breiðablik alveg hætt að sækja hratt fram á við“ spurði hinn hægláti Kristján Björnsson múrarameistari en hann hefur séð nánast alla heimaleiki Breiðabliks í marga áratugi.” skrifar penni blikar.is eftir leikinn. Nánar hér:
23.7.2026: Lok, lok og læs og allt í stáli!
,,Lok, lok og læs og allt í stáli,“ söng Ómar Ragnarsson svo eftirminnilega árið 1965. Segja má að þau orð Ómars hafi verið viðeigandi umsögn um leik Keflavíkur og Blika í Bestu deildinni í sunny Kef í gær. Hvorugu liðinu tókst að skora enda læstu varnarmenn liðanna öllum leiðum að markinu. Blikar eru því taplausir eftir þrjár umferðir en stuðningsmenn liðsins voru samt frekar súrir með bitleysi sóknarleiks sinna manna.” skrifar penni blikar.is eftir leikinn. Nánar hér:
Sagan & Tölfræði
Heildarleikjafjöldi liðanna í öllum mótum frá 1957 eru: 135 leikir Nokkuð jöfn skipti. Keflavík leiðir með sem nemur 2 sigrum – jafnteflin eru 25.
Leikjafjöldi í A-deild frá 1971 eru: 65 leikir. Jafnt á öllum tölum. Blikar leiða með sem nemur einum sigri – jafnteflin eru 16.
Bikarmeistarahópur Breiðabliks 2026
Bikarmeistarahópur Breiðabliks 2026
Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Dagskrá
Vel tekið á móti öllum í Blikaskúrnum. Kaldur á krana í Grænu stofunni og klassísku borgararnir frá Kjöthúsinu á sínum stað í sjoppunni.
Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi kl.19:15 á sunnudagskvöld.
Miðasala á leikinn er á: Stubb
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ
Mörk og klippur frá viðureign liðanna í Kópavogi í sumar: