Eftir frábæran leik gegn KR um síðustu helgi – en dræma stigaöflun í undanförnum leikjum – er komið að næsta heimaleik þegar eldsprækt lið Fram mætir til leiks á Eikarvöllinn í Kópavogi. Leikir Breiðabliks og Fram hafa á undanförnum árum verið opnir og spennandi þar sem Blikar hafa haft yfirhöndina á heimavelli. Fram hefur þó sýnt að þeir geta verið mjög erfiðir viðureignar. Sem sagt, allt til alls fyrir fjörugan marka-leik á Eikarvellinum í Kópavogi á mánudagskvöld.

Stigataflan lítur svona út eftir 19 umferðir: 

Sagan & Tölfræði

Mótsleikir Fram og Breiðabliks í öllum keppnum frá fyrsta leiknum árið 1961 eru 80. Fram hefur unnið 36 sinnum, Breiðablik 25, og 19 leikjum hefur lokið með jafntefli.

Efsta deild

Allir innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 62. Fram hefur þar yfirhöndina með 28 sigra gegn 17 - 17 leikir hafa endað með jafntefli..

Leikir liðanna í efstu deild á heimavelli Blika eru 31 talsins. Blikar leiða með 13 sigrum gegn 9 - jafnteflin eru 9. 

Síðustu 5 heimsóknir Fram í efstu deild í Kópavoginn:

S
Breiðablik
3 1
Fram
A-deild 25. umferð - Efri hluti Kópavogsvöllur 05.10.2025
1
1
9
J
Breiðablik
1 1
Fram
A-deild 12. umferð Kópavogsvöllur 23.06.2025
30
1
12
S
Breiðablik
3 1
Fram
A-deild 19. umferð Kópavogsvöllur 19.08.2024
33
3
14
S
Breiðablik
5 4
Fram
A-deild 4. umferð Fylkisvöllur 28.04.2023
1
11
S
Breiðablik
4 3
Fram
A-deild 7. umferð Kópavogsvöllur 22.05.2022
27
1
17

Breiðablikshópurinn

Nánari upplýsingar um leikmannahópinn.

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason. 

Dagskrá

Vel tekið á móti öllum í Blikaskúrnum. Kaldur á krana í Grænu stofunni og klassísku borgararnir frá Kjöthúsinu á sínum stað í sjoppunni.

Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi kl.19:15 á mánudagskvöld. 

Miðasala á leikinn er á: Stubb 

PÓÁ

Klippur frá heimsókn Fram í Kópavoginn í október í fyrra: