T
Breiðablik
1 2
Víkingur
A-deild 26. umferð - Efri hluti Eikarvöllurinn 16.10.2026
14
1
11

Blikar þurftu að sætta sig við 1:2 tap gegn Víkingum á Eikarvellinum í gær. Leikurinn byrjaði vel en dómari leiksins ákvað að setja sjálfan sig í aðalhlutverk og rak Anton Loga út af fyrir litlar sakir á tuttugustu mínútu. Þá var staðan 1:0 fyrir okkar pilta. Eftir það var á brattan að sækja og að lokum urðum við að sætta okkur við eins marks tap. Töluverður hiti var innan vallar og utan eftir þetta axarskaft dómarans. Þegar yfir lauk hafði einn Víkingur og þeir Ásgeir Helgi og Ólafur Ingi þjálfari fengið að líta rauða spjaldið.

 Leikurinn byrjaði ljómandi vel og benti allt til þess að þetta yrði frábær skemmtun. Jónatan Guðni hélt uppteknum hætti frá síðasta leik og kom okkur yfir með snilldarmarki snemma í leiknum.

Mikill hraði var í leiknum á þessum tíma en svo kom að þætti dómarans. Bæði brýtur Víkingurinn á Antoni Loga þegar nafni hans rennir boltanum út á hann og svo var þetta 50/50 tækling. Aldrei rautt spjald!

Auðvitað þurfti Blikaliðið að hörfa til baka einum færri. Víkingar gerðu harða hríð að marki okkar pilta en varnarleikur okkar var mjög sterkur. Ásgeir Helgi, Ívar og síðar Viktor Örn skölluðu allt í burtu með miklum krafti. Og aðrir hentu sér fyrir alla bolta eins og engin væri morgundagurinn. Rauði loginn brann áfram hjá dómaranum og nú varð Ólafur Ingi þjálfari fyrir því að fá rauða spjaldið þegar hann gerði smávægilegar athugasemdir við dómgæsluna. Við samt enn með forystuna þegar gengið var til búningsherbergjanna.

Í síðari hálfleik jókst sóknarþungi gestanna og eitthvað varð eftir að gefa. KA-mennirnir í Víkingstreyjunum sáu um að skora tvö mörk og því fór sem fór. En rauður logi var enn til staðar hjá dómaranum. Geðprýðisdrengurinn Ásgeir Helgi fékk að líta rauða spjaldið þegar hann ræddi stuttlega við einn Víkinginn sem hafði tekið Gabríel hálstaki og brotið fantalega á honum í einni skyndisókn okkar.

Þrátt fyrir tapið þá geta Blikar farið hnarrreistir af velli eftir þennan leik. Við spiluðum fínan fótbolta fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Varnarleikur liðsins var síðan af hæsta gæðaflokki þegar við þurftum að breyta um leikstíl. En það dugði því miður ekki til að þessu sinni enda við fantagott lið Víkinganna að eiga.

Við mætum því með kassann úti á KR -völl næsta laugardag. Við ætlum að enda þetta mót með reisn og þannig gefa skýr skilaboð að við ætlum okkar ofar í deildina á næsta ári!

AP