Blikar unnu góðan en torsóttan 3:1 sigur á Keflvíkingum í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildarinnar á Eikarvellinum í gær. Hávaðarok setti svip sinn á leikinn en sigur okkar pilta var sanngjarn þrátt fyrir að nokkrum sinnum höfum við sloppið með skrekkinn í síðari hálfleik. Það voru þeir Viktor Karl, Jónatan Ingi og Höskuldur sem settu mörk Blikaliðsins í gær. Mark fyrirliðans var sögulegt því Höskuldur var að spila sinn 400 leik fyrir meistaraflokk og þar að auki var markið það 100 í röðinni! Þvílíkur meistari þessi drengur!
,,Þrútið var loft og þungur sjór, þokudrungað vor...“ orti þjóðskáldið Matthías Jochumsson á sínum tíma. En okkar piltar létu ekki duttlunga í veðrinu hafa áhrifa á sig. Þeir byrjuðu leikinn af miklum krafti og héldu knettinum vel innan liðsins. Það var síðan á tuttugustu mínútu að Óli Valur átti netta sendingu á Viktor Karl sem setti knöttinn í netið með skemmtilegum snúningsbolta. Þrátt fyrir mikla yfirburði úti á vellinum þá vantaði herslumuninn að gera eitthvað úr því á síðasta vallarhelmingnum. Blikaliðið var stundum of hægfara í sóknarleik sínum og meiri brodd vantaði í fremstu víglínu til að klára færin. Staðan því 1:0 þegar liðinu gengu til búningsherbergjanna.
Litlu munaði að Keflavíkingarnir refsuðu okkur fyrir að nýta ekki færin í fyrri hálfleik framan af seinni hálfleik. En sem betur voru lukkudísirnar með okkur í liði og hinn ungi og efnilegi markvörður, Gylfi Snæhólm, stóð sig með prýði. Jónatan Ingi tók hins vegar til sinna ráða og tvöfaldaði forskot Blikaliðsins með gullfallegu marki. En það dugði samt ekki til að slá Keflavíkinga út af laginu og skömmu síðar minnkuðu þeir muninn eftir að of margir Blika höfðu hætt sér í sóknina.
En gulldrengurinn Höskuldur Gunnlaugsson nýtti sér mistök í vörn gestanna í uppbótartíma og gulltryggði sigur Blikaliðsins. Þvílík gæfa að þessi piltur hafi alist upp hjá okkur og að hafa spilað frábærlega fyrir okkur öll þessi ár!
Töluverð batamerki voru á Blikaliðinu í þessum leik samanborið við síðustu leiki í deildinni. Það var kraftur og leikgleði í liðinu og við héldum knettinum ágætlega innan liðsins. Samt var þetta ekki gallalaus leikur. Við erum ekki nógu klínískir inn í vítateig andstæðinganna og erum stundum of seinir að hefja sóknaraðgerðir okkar. En við unnum leikinn og eigum að fagna því!
Næsti leikur er gegn Íslandsmeisturum Víkings á Eikarvellinum okkar í Kópavoginum á laugardaginn kl.19.15. Það er alltaf fjör þegar vinir okkar úr Fossvoginum mæta og þá þurfa bæði leikmenn og áhorfendur að sýna á sér sínar bestu hliðar!
AP