Það var fallegt haustveður í Úlfarsárdal þegar leikmenn Fram og Breiðabliks gengu inn á Lambhagavöllinn, hitinn var um það bil sjö gráður en fór lækkandi og logn. Tíðindamaður Blikar.is hitti gamlan vin sem er blár í gegn í knattspyrnulegu tilliti að morgni leikdags og þar var minnst á sneypuferðir Blika upp í efri byggðir, svo ekki væri talað um afleitt tap í Smáranum fyrir skömmu. Manna á meðal var talað um mikla bikarþynnku í aðdraganda leiksins, Blikar væru saddir eftir að hafa náð markmiði sumarsins á föstudaginn, þeir væru öruggir í Evrópukeppni, ættu engavon um frekari frama í deildinni og þar fram eftir götum.
Liðið sem gekk inn á völlinn var nokkuð breytt frá því sem lagði Aftureldingu að velli í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í liðinni viku. Anton Ari var í markinu, Kristinn Jóns, Ásgeir Helgi, Ívar Örn og Óli Valur í vörninni, Anton Logi og Hlynur á miðjunni, Davíð, Gabríel og Jónatan á sömu slóðum og Þorleifur fremstur.
Bikarþynnka?
Frammarar höfðu greinilega fylgst með umræðunni og áttu von á þægilegum leik. Þeir vita auðvitað sem er að til þess að verða þunnir verða menn fyrst að verða fullir. Hinir bláklæddu hafa litið á eftirköst leiksins á föstudaginn sem ígildi fyllerís í einhverjum skilningi – sem hefði síðan orsakað nefnda bikarþynnku. Hér mætti reyndar vitna í Halldór Laxness í Gjörníngabók frá 1955: „Það er gagnslaust að vera fullur. Því þegar maður er búinn að vera fullur, þá er maður orðinn ófullur aftur.“
Fyrstu þrjátíu mínútur leiksins voru býsna tíðindalitlar. Frammarar voru meira með boltann, sendu vel og lengi á milli sín en það gerðist ekkert meira en það. Þeir ógnuðu ekki marki gestanna. Okkar menn héldu þeim algjörlega í skefjum án þess að sækja að af einhverjum ógnarkrafti.
Var kannski engin bikarþynnka? Hvernig mátti það vera? Höfðu Blikar leikið á sjálf náttúrulögmálin með einhverjum hætti?
Sykurvatn og súrefni
Frammarar hefðu kannski betur skellt sér á bókasafnið fyrir leik en það er einmitt við hlið heimavallar þeirra og gripið niður í bók Yrsu Sigurðardóttur um lögmanninn Þóru, Horfðu á mig, sem kom út árið 2019. Þar er upplýst að ekki er allt sem sýnist í drykkjuskap og afleiðingum hans:
„„Hún fékk sykurvatn í æð, eitthvað sem þeir kölluð dripp. Já og súrefni.“
„Og varð edrú?“ spurði Þóra og gat ekki leynt efasemdunum sem sóttu á hana ...
„Algjörlega“ Lena breiddi fram lófana. „Þetta var ótrúlegt, eins og galdur. Ég segi nú kannski ekki að hún hafi orðið alveg bláedrú en við gátum að minnsta kosti farið niður í bæ. Hún hafði komið bókstaflega á perunni.“ (338)
Tíðindamanni Blikar.is finnst liggja í augum uppi að Ólafur Ingi hefur munað eftir þessu ráði í bók Yrsu og gripið til þeirra ráða sem hún upplýsir um í glæpasögunni, gefið sínum mönnum dripp og súrefni strax eftir leik og þannig komið í veg fyrir bikarfyllerí og þar með -þynnku. Og súrefni nærir eld. Að minnsta kosti voru Blikar með allt á hreinu í kvöld.
Brúnin lyftist
Einhver kynni að vísa í þrumu og heiðskírt loft þegar Gabríel Snær tók hornspyrnu eftir hálftíma leik, fékk boltann strax aftur, sendi hann strax að nýju fyrir þannig að fyrirliði Framliðsins skoraði sjálfsmark. Það mætti alveg líta svo á að þar með hefði réttlætinu verið fullnægt – eftir þá meðferð sem okkar menn hafa fengið frá honum í sumar. Staðan 0-1 en að vísu var klukkutími eftir.
Á lokamínútu hálfleiksins var Gabríel Snær hins vegar aftur á ferðinni og skoraði laglegt mark utan úr teig. 0-2 og brúnin heldur betur farin að lyftast á gestunum í stúkunni.
Það var létt yfir Kópavogsbúum í hálfleik, enda hafa okkar menn ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum í Úlfarsárdalnum að undanförnu.
Þrisvar sinnum þrír
Frammarar gerðu alls konar skiptingar í hálfleik og komu dýrvitlausir til leiks. Þeir náðu að minnka muninn fljótlega en síðan rann móðurinn af þeim. Þegar 66 mínútur voru á klukkunni fengu okkar menn aftur á móti hornspyrnu. Ívar Örn skallaði í átt að marki þar sem Ásgeir Helgi kom askvaðandi og lúðraði knettinum í netið. Staðan orðin 1-3.
Frammarar fengu einhver færi eftir þetta en Anton Ari var traustur að vanda og varði meðal annars glæsilega á lokamínútunni.
Þetta var að sönnu engin flugeldasýning hjá Blikum en það er líka ákveðin dygð að vera ókónómískur í hreyfingum: eiga þrjú skot á markið sem gefa þrjú mörk og þar með þrjú stig. Á sunnudaginn mæta okkar menn liði Akurnesinga uppi á Skipaskaga. Þangað fylgja þeim sérstakar baráttustuðkveðjur – og vonandi gleymir Ólafur Ingi ekki að gefa þeim sykurvatn í æð og súrefni fyrir leik.
PMÓ