BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Alexandra Jóhanns framlengir

06.11.2018

Með mikilli ánægju getur Breiðablik tilkynnt að Alexandra Jóhannsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og er nú samningsbundin til næstu þriggja ára.

Alexandra er 18 ára gömul og kom til Breiðabliks frá Haukum síðasta vetur. Hún kom við sögu í 32 leikjum með Blikum á sínu fyrsta tímabili og skoraði í þeim 11 mörk. Hún var mikilvægur hlekkur í liði Blika sem varð Íslands- og bikarmeistari síðastliðið sumar og var meðal annars útnefnd efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar af KSÍ.

Alexandra var í haust valin í fyrsta sinn í A-landsliðið fyrir leikina gegn Þýskalandi og Tékklandi í undankeppni HM. Hún er jafnframt í æfingahópi landsliðsins sem kemur saman um helgina. Alexandra hefur verið fyrirliði U19 ára landsliðsins og var einnig fastamaður í U17 ára landsliðinu. Hún á alls að baki 39 leiki og 12 mörk fyrir yngri landslið Íslands.

Blikar eru hæstánægðir að hafa endurnýjað samninginn við Alexöndru og að hún vilji halda áfram frekari framförum sínum innan félagsins. Hún sló rækilega í gegn á sínu fyrsta ári með liðinu og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í boltanum

Til baka