BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

,,Stefnum á meistaratitil á næsta ári“, segir Ólafur Ingi Skúlason, nýr þjálfari meistaraflokks karla

24.11.2025 image

Rúmlega 50 manns mættu á fundinn og er það besta mæting sem hefur verið á slíkan fund hjá knattspyrnudeildinni frá upphafi.

Knattspyrnudeild Breiðabliks og Blikaklúbburinn stóðu fyrir opnum fundi með Ólafi Inga Skúlasyni, nýjum þjálfara meistaraflokks karla í Glersalnum í stúkunni á Kópavogsvelli í kvöld. Einnig kynnti Bjarni Bergsson, formaður meistaraflokksráðs karla, starfsemi ráðsins og hver helstu verkefni þess væru.

Það var Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, sem bauð gestina velkomna og bað síðan þá Hannes Friðbjarnarson og Finn Beck að taka við stjórn fundarins.Bjarni Bergsson reið á vaðið og fór stuttlega yfir helstu verkefni og kynnti meðlimi ráðsins.  Þá var komið að helsta aðdráttarafli fundarins, Ólafi Inga Skúlasyni.

 

Hann byrjaði á því að kynna sjálfan sig og fór yfir merkan knattspyrnferil sinn frá því að hann hóf feril sinn hjá Fylki í Árbænum yfir í atvinnumennsku í jafn ólíkum löndum eins og Englandi, Svíþjóð, Danmörku, Belgíu og Tyrklandi. Eftir 17 ár í atvinnumennsku og rúmlega 30 leiki með íslenska landsliðinu snéri Ólafur Ingi aftur heim í Árbæinn og tók við þjálfun Fylkis. Þaðan lá leið hans til KSÍ þar sem hann þjálfaði meðal annars U-19 og U-21 árs landslið Íslands.

Í máli Ólafs Inga kom meðal annars fram að vinna stæði nú yfir að fullmóta hópinn fyrir næsta keppnistímabil. Vilji forsvarsmanna Blikaliðsins er að þessu starfi verði lokið sem fyrst.

Það liggur fyrir að minnsta kosti þrír núverandi leikmenn verði ekki áfram, þeir Damir Muminovic, Guðmundur Magnússon og Tobias Thomsen. Þjálfarateymið yrði að mestu leyti óbreytt og gerði hann ráð fyrir að Arnór Aðalsteinsson yrði áfram aðstoðarþjálfari og Haraldur Björnsson markmannsþjálfari. Svo nefndi hann Emil Pálsson sem hefur þegar tekið til starfa sem tengi- eða yfirfærsluþjálfari (transition) meistaraflokks karla. Aðspurður kvaðst Ólafur Ingi ekki finna fyrir því að Blikaliðið yrði ekki í Evrópukeppni á næsta ári. ,,Breiðablik er stór og sterkur klúbbur og spennandi kostur fyrir leikmenn að spila með meistaraflokki,“ sagði hann.

Ólafur Ingi segist leggja mikið upp úr góðum samskiptum innan og utan félags. ,,Ég tel það mikilvægt að eiga góð samskipti við alla þjálfara félagsins og hef þegar átt góð samtöl við þjálfara 2. flokksins. Mér finnst við vera á sambærilegri línu varðandi tengsl á milli flokkanna,“ sagði Ólafur. Hann hló þegar Freyr  Snorrason spurði hann hvort búið væri að setja sér markmið fyrir næsta sumar. ,,Við ætlum auðvitað að verða meistarar í öllum mótum sem við tökum þátt í! Það er engin spurning og ég veit að þið eruð sammála mér,“ sagði hann og fékk jákvæð svör úr salnum við þessari yfirlýsingu!

Varðandi möguleika yngri leikmanna Breiðabliks til að brjóta sér leið inn í meistaraflokksliðið sagði Ólafur Ingi að það væri alltaf markmiðið að gefa ungum leikmönnum tækifæri. Það myndi hann til dæmis gera með því að vera með æfingar fyrir yngri leikmenn í janúar því þá væru þeir leikmenn sem nú væru í Evrópubaráttu í fríi. Nýtt undirbúningstímabil myndi síðan byrja fyrstu dagana í febrúar. ,,Vonandi hafa þá einhverjir yngri leikmenn sýnt það að þeir eigi heima í meistaraflokkshópnum. En það er engum ungum leikmanni greiði gerður með því að láta hann spila með meistaraflokki ef hann er ekki tilbúinn í það verkefni, hvorki andlega né líkamlega.“ Hann bætti því við að Emil Pálsson yrði sá sem fylgdist með þessum ungu leikmönnum og svo yrði hann að sjálfsögðu í góðu samstarfi við þjálfarana í 2. og 3. flokki.

Góður rómur var gerður að málflutningi þessa nýja þjálfara meistaraflokksins. Hann svaraði öllum spurningum af rósemi og yfirvegun og greinilegt að hann er tilbúinn í þetta verkefni. Það voru því glaðir Blikar sem héldu út í kalt vetrarkvöldið eftir ánægjulega kvöldstund með Ólafi Inga Skúlasyni.

-AP

Til baka