Getraunaleikurinn hefst eftir viku - fjöldi góðra vinninga. skráning er hafin
  • Draumur January 19

    Í lok janúar fer í gang nýr getraunaleikur hjá Breiðablik með fjölda glæsilegra vinninga.

    Leikurinn verður keyrður á vefnum á síðunni http:\\tippleikur.is það eina sem þarf að gera er að fara inn á vefinn, velja nýskráning og skrá inn hóp. Leikurinn verður sérlega glæsilegur, það verða vinningar í hverri viku ásamt veglegum verðlaunum fyrir fyrstu þrjú sætin. Fyrstu verðlaun eru helgarferð til Evrópu fyrir tvo, í önnur verðlaun er gisting á Hótel Rangá fyrir tvo með öllu tilheyrandi og í þriðju verðlaun er út að borða á UNO fyrir að minnsta kosti 2.
    Sigurvegarinn fær að sjálfsögðu Getraunabikarinn góða til varðveislu í hálft ár.
    Endilega allir að vera með og hvetja aðra í kringum ykkur til að taka þátt. Hægt að gera allt á netinu og því óþarfi að mæta í Smárann til að taka þátt í tippleiknum. (samt allir velkomnir í Smárann að sjálfsögðu)

    Kostar aðeins 5000 kall á hópinn

    Ef það eru einhverjar spurningar þá endilega hafið samband við okkur á netfangið 1x2@breidablik.is

    Við minnum á getraunastarfið alla laugardagsmorgna í Smáranum.

    Bestu kveðjur
    Getraunanefndin

Howdy, Stranger!

It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!

Sign In Apply for Membership

Categories