Sá á Fotbolti.net að leikmenn mfl. karla hafa sent stjórninni bréf og skorað á hana að semja við Kára fyrirliða. Tek undir áskorun leikmanna til stjórnarinnar að semja við leikmanninn sem fyrst. Löngu orðið tímabært að báðir aðilar slíðri sverðin núna um jólin og mætist á jafnréttisgrundvelli. Jafnframt verði samið við Kidda Steinþórs og liðið styrkt ennfremur varnarlega og hugsanlega framávið.
Áfram Blikar
Hvaða bull er þetta að leikmenn séu að skipta sér af leikmannamálum hjá félaginu. Þetta hefur maður ekki séð áður á Íslandi eða í öðrum löndum. Þeir eiga að hafa hugan við það sem gerist inn á vellinum og ekki neit annað, það eru aðrir sem sjá um leikmannamál. Ég á ekki til eitt einasta orð.
Áfram Blikar
Þetta er ákveðin yfirlýsing frá öllum leikmönnum félagsins. Grelli hef á tilfinningunni að þú hafir nú ekki séð mikið hvað þá erlendis. Það er gott að þú eigir ekki orð því þá segir þú ekki neitt !!!! Það er mikið ábyrgðarleysi af stjórn að hunsa svona eindreginn vilja leikmanna því það er mjög sjaldgæft að þeir láti svona eindreginn vilja í ljós. En kannski vill stjórninn spila leikina 2012. Allavega er ljóst hverjir taka ábyrðina á frammistöðunni næsta sumar. Hef reyndar heyrt frá leikmönnum að fyrirliðanum hafi ekki einusinni verið boðinn samningur. Ef satt reynist þá finnst mér stjórnin vera í vondum málum. Hún er á góðri leið með að eyðileggja sigursælasta lið félagsins frá upphafi!!!! Mál Kidda eru óljósari virðast fara mikið í gegnum umboðsmenn. Staðreyndir málsins eru þessar : meðan ekki er samið við þessa leikmenn vilja menn ekki koma til Blika og Guðmann fór til FH vegna þess að fyriliðanum var ekki boðinn samningur!!!!!!
Hvaða rugl er í gangi núna? Ekki gat ég skilið (fyrirliðan) öðruvísi en að honum hefði verið boðinn samningur. Þótt þessi stjórn hafi gert marga hluti sem ég er ekki sammála, þá tel ég víst að þeir hafi reynt að tala við flugumferðarstjórann. En ég tel engar líkur á því að Guðmann hafi farið í Fimleikafélagið vegna þess að ekki var samið við (fyrirliðan). Hann hefði frekar átt að koma því ekki verður samkeppnin mikil um stöðuna hans í liðinu.
Það er nú alveg greinilegt að þú hefur hrikalega lélega heimildarmenn innan raða leikmanna Hlemmurinn og ég hef séð mikið meira en þú gerir þér grein fyrir,Ég veit fyrir víst að Kára var boðin samningur í vor. Hefur það ekki alltaf verið þannig að stjórn og þjálfarar taki ábyrgðina. Ég ætla rétt að vona að þú haldir ekki að sumarið standi og falli með Kára eða einnverjum einum eða tveim öðrum það koma alltaf menn í manns stað ég mann ekki betur að það hafi verið þessi Stjórn og Þjálfari sem bjó þetta lið til sem þú ert að tala um. Það hafði ekki neitt með Kára að gera að Guðmann kom ekki til félagsins og það er bara barnalegt að halda að Guðmann hafi ekki komið út af því, mér finns þú vera gera lítið úr Guðmanni með svona yfirlísingu.
Kv.Grelli
Staðreyndir Grelli ( sem hefur séð mikið að eigin sögn ) :
1. Árið 2012 er að ganga i garð og ekki hefur verið samið við Kidda S.
2. Frá því samningur fyrirliðans rann út í haust hefur hann ekki fengið samningstilboð í hendurnar frá stjórn ? Hvað segir það !!!
3. Allir leikmenn sem taldir eru styrkja byrjunarlið í Pepsi deildinni og Blikar vilja semja við, semja við önnur lið nú síðast Atli Sigurjónsson.
4 Varðandi Guðmann þá fullyrði ég að Grelli skilur einganveginn samhengi hlutanna !!!!
( þótt reyndur sé að eigin sögn ).
5. Hvernig axlar stjórn ábyrð ? Finnst við stuðningsmenn fá litlar útskyringar og veit lítið hver er stefnan hjá stjórninni á næstu árum.
Gleðileg Jól
Félagi Hlemmurinn
1. Árið 2012 er að ganga i garð og ekki hefur verið samið við Kidda S.
Hann hefur verið að skoða hluti Erlendis eins og allir hafa getað lesið um á öllum sport fjölmiðlum.
2.Það seigir lítið um gang mála og það seigir ekki hvort að menn hafi talað saman eða ekki. Ég veit að menn hafa talað saman.
3. Ég vona að Breiðablik fari ekki í gamla farið og noti peninga sem ekki eru til staðar og yfir bjóði önnur lið. Ég veit ekki betur að við eigum nóg af miðjumönnum svo að ef Atli fer í KR er það bara þannig. Hver á að fara út úr liðinu fyrir Atla?
4.Ó jú gamli Grelli skilur alveg hvað þú ert að meina. Ég veit líka að Kári var á síðustu æfingum fyrir Jólafrí og þó svo að Guðmann væri farin í FH.
5. Breiðablik er ekki eins og einnhver saumaklúbbur Ég sé ekki að Stjórn hjá neinum Klúbbi hér sé að útskíra hvað þeir eru að gera á leikmannamarkaði það er bara betra að halda því leindu. Stjórn Blika hefur fyrir löngu sagt að það sé stefna félagsins að nota sem mest uppaldaleikmenn og er það bara frábær stefna og horfa mörg félög til Blika með öfundaraugum vegna þess.
6.Hvað höfum við fram yfir önnur félög það er aðstaða, allar æfingar inni við bestu aðstæður flott umgjörð flottir þjálfarar hvað vilja menn meira, jú kanski Bíl Íbúð og 400 til 500 hundruð þ á mánuði.
Ég seigi bara við okkar leik menn hvar er blika hjartað, Maður horfir á hvern uppaldaleikmannin koma heim og fara beint til ÍA kanski er bara til ÍA hjarta???
Kv Grelli
It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!