Knattspyrnudeild Þórs á Akureyri hefur samþykkt tilboð Breiðabliks í bakvörðinn Gísla Pál Helgason, samkvæmt öruggum heimildum íþróttadeildar Morgunblaðsins og mbl.is. Þar með virðast allar líkur á að Gísli gangi til liðs við Kópavogsfélagið.
Breiðablik gerði Þórsurum tilboð í bæði Gísla Pál og Atla Sigurjónsson fyrir skömmu en sem kunnugt er samdi Atli við KR-inga í gær.
Gísli Páll er tvítugur og hefur verið lykilmaður hjá Þór síðustu árin en hann lék 21 af 22 leikjum Akureyrarliðsins í úrvalsdeildinni síðasta sumar, alla í byrjunarliði. Hann hefur leikið 13 leiki með yngri landsliðum Íslands og svo sinn fyrsta leik með 21-árs landsliðinu í haust. Þetta er það sem okkur vanta.
Kv. Grelli
Verður vonandi klárað fljótlega!!!
It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!