ætla menn ekkert að ræða þetta hérna? það á að vera forgansatriði hjá klúbbnum að semja aftur við þennan strák
Það er frábært ef hann fær tækifæri í útlöndum en það yrði skandall að sjá okkar langbesta leikmann í KR-FH-Vals-Stjörnu treyju næsta sumar og það er eithvað mikið að í þessari stjórn ef hún fer ekki í þetta mál nuna
Hef ekki góða tilfinningu fyrir þessu ,þetta fer ekki vel. Eins og leikmenn flýji félagið.Tala í viðtölum eins og Blikar séu einn af mörgum möguleikunum.
Hvað með Kára, skil ekkert!!!! Ætla menn ekki að semja við sigursælasta fyrirliða Blika frá upphafi. Óumdeildan leiðtoga í liðinu. Finnst leiðinlegt hvað þjálfari og stjórn koma illa fram við hann en það á eftir að koma niður á þeim. Fylkismenn heppnir ef þeir landa honum. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur !!!!
Það virðist vera sem doði og metnaðarleysi séu í gangi hjá félaginu. Maður hefði haldið að eftir vonbrigði síðasta keppnistímabils færu menn á fullt að styrkja liðið. Það sem við þurfum á að halda eru menn sem efla byrjunarliðið, ekki styrkja hópinn.
Ef við ætlum okkur að vera í topp 3 þá kostar það peninga að viðhalda þeirri stöðu. Sé það svo að stjórn og þjálfari hafi aðra sýn á þetta á að koma þeirri skoðun sinni á framfæri við stuðningsmennina.
Við þurfum á því að halda að stuðningsmennirnir þjappi sér saman bak við liðið. Þar gerist ekki nema forsvarsmenn liðsins tali hreint út um framtíðarplönin.
Ég hefði gaman af því að fá að heyra frá þér Hlemmurinn hvað þú hefur fyrir þér að stjórn og þjálfarar hafi komið svona illa fram við Kára það þarf alltaf tvo til að deila. Ég hef hvergi séð það að Fylkir ætli að semja við Kára nema á Fótbolta .net og eru það bara getgátur. Það er alveg merkilegt með menn hér á spjallinu hvað þeir eru alltaf fljótir að kenna stjórn og þjálfurum um alla hluti, kanski eru það bara leikmenn sem eru með allt of háar kröfur, það er nú ekki eins og þeir hafi unnið fyrir þeim síðasta sumar. Ég held að menn ættu bara að koma sér niður á jörðina og þakka frekar þeim sem stjórna fyrir 2 Bikar og Íslandsmeistara titla, það er nú ekki eins og við höfum vaðið í þeim áður en þessi stjórn og þjálfarar komu.
kv
Grelli
Eitthvað heyrði ég um 300 þúsund + pr. mánuð + bónus. Ég vona að það sé ekki rétt tala
Hef heyrt frá mörgum 100 þúsund per mánuð + bónus. Miðað við kröfurnar í dag finnst mér það ekki merkileg laun. Til að setja þetta í samhengi eru atvinnuleysisbætur 150 þúsund per mánuð og lægstu greiðslur SÍ til 75% öryrkja ( samkv. RUV ) 145 þúsund per mánuð. Dæmi hver fyrir sig.
Það má svo bæta því við að strákarnir eru að þiggja þessar greiðslur sem verktakar og þurfa að borga tryggingargjald af þessu + skatt.
Gerum svo ráð fyrir að menn þurfi að leggja út fyrir æfingaferð, úr eigin vasa ca. 200 þús.
Reglulegt vinnutap á leikdögum, menn vinna flestir fram að hádegi.
Bónusgreiðslur eru varla e-ð sem menn geta stólað á, miðað við gengi liðsins í sumar.
Sammála Hlemminum um að menn verða seint taldir ofaldir á þessum launum.
Menn hérna á spjallinu hafa haldið því fram að leikmenn séu að fara fram á Tevez laun og séu gráðugir. Þeir ættu að læra reikning upp á nýtt. Samkv. vísir.is fær Tevez 3.4 milljónir punda á ári hjá Milanó ( margfaldað með x180 til að fá ísl. kr.) , en fékk 6.8 milljónir punda hjá City ( x 180 ísl. kr. ).
Menn ættu að varast alhæfingar eins og "þá eru kröfur leikmanna farnar framúr öllu hófi í fótboltanum almennt" eins og það sé Ísl. veruleiki.
Er sammála Turninum að flestir leikmenn á Íslandi verða seint taldir ofaldir á sínum launum.
Félög ættu að skoða það að minnka aðeins kröfurnar og stytta æfinga + keppnistímabil t.d. í 8-9 mánuði en ekki 11 mánuði eins og er í dag. Þetta er gert í ameriskum ruðningi og þar fá margir ofurlaun. Félög gætu einnig í leiðinni sparað þjálfunarkostnað sem er mörgum liðum þungur baggi. Leikmenn hafa gott af hvíld og stunda aðrar íþróttir.
It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!