Guðmann
  • Draumur November 2011

    Er verið að gera grín að okkur með Guðmann og FH??? Hvað er eiginlega í gangi?

  • Grelli November 2011

    Er ekki best að við bendum spurninguni beint til hans. Guðmann ert þú að gera grín í okkur Blikum eða ?

    kv

  • orlygur November 2011

    Hann er stór
    Hann er óður
    Hann er rosalega góður
    Guðmann Þóris

    Ef hann spilar heima, spilar hann sjálfsögðu með grænum. Er það ekki? Stjórn? Manni?

  • Aguero December 2011

    hann valdi FH, svekkjandi fyrir blika sem voru með lélegustu vörnina í deildinni í sumar

  • Hann_Sjalfur December 2011

    Sjaldan launar Kálfurinn ofeldið
    Nú hefur sú frétt borist okkur Blikum að Guðmann Þórisson hafi valið Fimleikafélag Hafnarfjarðar fram yfir Breiðablik, til að spila fyrir.
    Þá er kannski rétt að geta þess að fyrir um rétt 12 mánuðum síðan fór ég á styrktarleik sem Breiðablik hélt fyrir hann og fjölskyldu hans. Þetta er vist þakklæti fyrir þann leik reikna ég með?
    Ef ég mann rétt þá varð Breiðablik að gefa eftir allar sínar kröfur til að félagið myndi ekki standa í vegi fyrir því að Guðmann gæti orðið leikmaður Nybergsund. Þetta eru víst þakkir fyrir það reikna ég með?
    Ef ég mann rétt þá varð Breiðablik að gefa eftir hluta þeirra smá greiðslna sem það átti að fá frá Nybergsund vegna nauðarsamninga þess félags, svo að Guðmann fengi að spila þar áfram. Þetta eru víst þakkir fyrir það reikna ég með?
    En ég held nú samt að sú ákvörðun núverandi stjórnar sem ég treysti þokkalega, að ganga ekki að óraunhæfum kröfum Kára spili þarna stórt hlutverk.
    Ég bara spyr hvers vegna FH?

  • hrafnkellg December 2011

    Mér líkar ekki þessi umræða. Ég fór á styrktarleikinn til þess að styðja fjölskylduna. Guðmann er drengur góður og spilaði fullt af leikjum fyrir okkur. Hann á þetta ekki skilið frá okkur. Gangi honum og hans fólki sem best.

    Hrafnkell Gíslason

  • Turninn December 2011

    Sammála þér Hrafnkell. Mér finnst þetta vera lágkúra af verstu gerð að tala með því móti sem þessi svokallaði Hann_ Sjálfur gerir. Ég ætla bara að óska Guðmanni velfarnaðar á vellinum með nýju félagi. Það á kannski vel við að hann velji FH-liðið, man ekki betur en að það hafi verið FHingar sem studdu líka vel við bakið á fjölskyldu Guðmanns, líkt og við Blikar.

  • kristjang December 2011

    Jæja drengir....þessi umræða er á gríðarlega lágu plani og menn eiga að skammast sín fyrir að draga fjölskyldu Guðmanns inn í þetta! Guðmann er góður drengur og á betra skilið en þetta bull frá Blikum. Þetta er fótbolti og menn geta haft sína skoðun á stjórn og einstaka leikmönnum en það verður að vera á fótboltalegum forsendum. Að draga umræðu niður á þetta plan er engum til framdráttar! Ég óska Guðmanni alls hins besta á nýjum stað og vona að menn taki vel á móti honum þegar að hann kemur í Kópavoginn. Ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun hans eiga sér væntanlega eðlilegar skýringar....

  • Hannes December 2011

    Strákar/Blikar
    Við getum ekki verið að hrauna yfir menn og síst þeirra fjölskyldur hér. Auðvitað er fúlt að fá ekki sína menn til baka, og það er klúður stjórnarinnar að gera Guðmann ekki spenntari en þetta að koma í gamla klúbbinn sinn. Mín skoðun er samt sú að ef menn vilja spila fyrir annað lið, þá þurfa Blikar ekki á viðkomandi leikmanni að halda.
    EN stjórnin ætti að geta gert betur en það að missa menn til næstu félaga, sem Blikar, miðað við árangur undanfarinna ára, eru í samkeppni við.
    Nú finnst mér Blikarnir vera komnir aftur í gamla minnimáttarkennda hugsunarganginn, og í staðinn fyrir að hugsa eins og sigurvegarar þá er byrjað að spóla í gömlu fari, þar sem Blikarnir spóluðu í mörg ár. Við erum með 2 stóra titla á 3 árum og verðum að haga okkur eftir því.
    ég óska Guðmanni góðs gengis í framtíðinni, og vonast til þess að sjá hann í grænu fyrr en síðar.
    Verum málefnalegir, drögum ekki þetta spjall á sama stað og barnaland.

  • Grelli December 2011

    Blikar
    Ég verð bara að koma því að að það er loksins komið smá líf á spjallið hjá okkur og er það bara frábærar fréttir. Mig langar bara til að seigja að það er allt hjarta farið úr boltanum í dag nema kanski á Akranesi. Það er alveg sama hvað uppeldisfélag hefur gert eða liðkað fyrir leikmenn sem farið hafa út, :það er eins og það skipti ekki neinu máli fyrir leikmenn. Ég myndi ég vilja sjá þessa leikmenn koma heim og gefa það út strax að uppeldisfélagið þeirra væri kostur no.1. En við skulum ekki velta okkur meira upp úr þessu með Guðmann við urðum Bikarmeistarar og Íslandsmeistarar og eingin Guðmann hjá okkur þá. Ég veit að þeir leikmenn sem við höfum og munu koma til okkar leggja sig alla fram í sumar til að við blikar getum verið stoltir af okkar liði, Það er eingin stærri en Klubburin.
    Áfram Breiðablik

  • GMS December 2011

    Öh sammála síðustu ræðumönnum.
    Ég er auðvitað gríðarlega svekktur að Guðmann skuli ekki vera í græna búningnum á næsta ári. En ég er viss um að hann verði í Blikabúningnum innanundir. Þá finnst mér ekki sanngjarnt að gagnrýna stjórnina í svona málum.
    Við bjóðum bara eins vel og við getum og ég treysti þjálfarateyminu til að styrkja hópinn fyrir næsta sumar.
    Mér líst nú bara nokkuð vel á hópinn (með Þórsurunum 2) eins og hann er í dag. Auðvitað verðum við að fá einn hafsent til að fullmanna stöðurnar.
    Það spila nú bara 11 leikmenn inn á í einu og mér finnst hópurinn vera gríðarlega stór og öflugur. Nánast 2 leikmenn um hverja stöðu.

  • GMS December 2011

    Gleymi auðvitað að taka það fram að ég óska Guðmanni vini mínum góðs gengis í öllum leikjunum á næsta ári utan tveggja.

Howdy, Stranger!

It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!

Sign In Apply for Membership

Categories