Leikmannamarkaðurinn??
  • Grelli November 2011

    Hæ kæru blikar, Hvernig leikmenn haldið þið að við þurfum til að bæta í okkar fræabæra hóp eða þurfum við leikmenn yfir höfuð. Eigum við að fá okkur Íslenska eða leita yfir hafið og fá okkur eitthvað þaðan. Fyrir nokkrum árum vorum við með 3 frábæra Serba sem okkar strákar lærð mikið af eigum við að skoða eitthvað svo leiðis? Það eina sem maður byður um er að þeir sem eru uppaldnir eða þeir sem koma frá öðrum liðum beri virðingu fyrir græna búningnum og gefi sig 120% í öll þau verefni sem liðið fer í og eru til búnir að deyja fyrir klúbbin. Hvernig væri að búa til smá umræðu hér á spjallinu.

    Áfram Breiðablik
    Grelli

  • Darri November 2011

    fyrst og fremst vill ég að við missum ekki kristinn til annars liðs hérna heima, svo er talað um í dag að Kári sé að fara í burtu, ég vill ekki sjá hann fara, þó hann geti verið mistækur. Hann er fyriliðinn okkar og mikið blikahjarta held ég :).

    svo vil ég fá efnilegan dreng :) Andri Rúnar Bjarnason frá Bí/Bolungarvík sem fékk voðalega lítið að spila seinasta ár undir stjórn Guðjóns, en hann var markahæsti maður 2 deildar árið á undann

  • Aguero November 2011

    skil ekki þetta kára ársæls mál, hann hlýtur að vera að biðja um eithver tevez laun fyrst þeir vilja ekki semja við hann ( tek það fram að ég veit ekkert um þetta mál). Síðann þarf að semja við kristinn steindórson ekki seinna en núna annars get ég ekki verið rólegur.

  • Draumur November 2011

    Algerlega sammála varðandi Kristinn. Hann má ekki fara neitt annað hér á landi. Það má ekki vera þannig ennþá að við séum að setja okkur í eitthvað sæti fyrir neðan FH og KR. Við erum og eigum að vera sambærilegur kostur og uppaldir leikmenn sem við viljum halda eiga ekki að láta sér detta í hug að fara annað innanlands.

  • Turninn November 2011

    Þótt mér sé umhugað um við höldum sem lengst hjá okkur leikmönnum, uppöldum eða ekki, þá verðum við að sína því skilning ef þeir vilja róa á önnur mið. Sérstaklega í ljósi þess að við fögnum því þegar leikmenn koma til okkar frá öðrum liðum, sbr. Gummi P. frá KR, Rafn Andri frá Þrótti, Arnar Már frá Stjörnunni o.fl. Það eiga svo sannarlega ekki að gilda önnur lögmál um leikmenn hjá Breiðablik en aðra leikmenn.

  • Hlemmurinn November 2011

    Hlemmurinn

    Það er ekkert í lagi að láta lykilleikmenn róa á önnur mið eins og hefur verið að gerast í ár í kklúbbnum og er að gerast núna. Hef enga trú á að þetta fjalli um Tevez laun enda Blikar þekktir fyrir mikla ráðdeildarsemi á leikmannamarkaði enda fá þeir enga feita bita á þeim markaði. Verst að enda uppi með rándýra leikmenn sem skyndilausnir og eru kannski farnir fyrir lok tímabilsins. Ég er ekki ánægður með gang mála og finnst eitthvað vera að í leikmannamálum hjá félaginu.

  • Draumur November 2011

    Þetta er tvennt. Annarsvegar uppaldir leikmenn sem eru að fá öll tækifæri hjá okkur, þeir eiga ekki að fara neitt. Þannig er staðan með Kidda, það er eitthvað að hjá okkur ef hann fer, svo einfallt er það bara. Hins vegar eru þetta uppaldir leikmenn sem telja sig ekki vera að fá eðlileg tækifæri, við fögnum því að sjáfsögðu ef þeir fara eitthvað annað og sérstaklega þegar þeir ná árangri þar. Við þurfum ekkert að halda þeim bara ef þeir eru Blikar, ef þeir eru ekki í plönum þjálfara

Howdy, Stranger!

It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!

Sign In Apply for Membership

Categories