Hlemmurinn
Þar eru æ fleiri í þessu landi ( samanb. Twitter á fotbolti.net ) sem eru hættir að botna í rekstrinum í Kópavogi. Peningarnir sem félagið fær fara hvert??? Áhuginn að fá betri leikmenn til félagsins ( samanb. Gunnar Örn og fleiri ) virðist ekki vera til staðar og ekki er samið við samningslausa leikmenn hjá félaginu sem hafa gert góða hluti undanfarin ár. Fólk almennt er hætt að skilja þetta !!!! Það er eitthvað sem ekki stemmir !!!! Getur þjálfari liðsins verið sáttur við þessa þróun mála ??? Sem Bliki botna ég ekkert í þessu andvaraleysi og finn fyrir vaxandi gremju ganvart þeim sem eiga að sjá um þessi mál !!!! Hvað er markaðsvirði liða sem stefna á 1. Deild !!!!
Sælir
Mér finnst það ekki, ef Þjálfari metur það að við höfum leikmenn í þær stöður sem hann getur spilað þá er það bara í góðu lagi. Þó svo að menn hafi verið einnhventíman í Breiðablik þá er það ekki skilda hjá klúbbnum að kaupa þá til baka bara af því að önnur lið geta ekki notað þá. Áttum við þá ekki líka að fá Magga Palla. ég veit ekki betur en að þessir leik menn hafi yfirgefið okkur á sínum tíma!!! Við notum bara okkar ungu leikmenn og búum til nýtt lið. Allt sníst þetta um að reka félagið réttu meiginn við núllið, þó svo við höfum feingið eitthvað af peningum þá held ég að Breiðablik liggi ekki á gullkistum eins og mér finnst stundum hérna þegar ég er að lesa þessa pósta.
kv
Grelli
Hlemmurinn
Sæll Grelli
Sparsemi er dyggð en níska er löstur sagði kerlinginn við karlinn þegar hann þráaðist við að kaupa nýja mjólkurkú á bæinn þegar sú gamla dó og kvígurnar varla komnar með spena.
It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!