2-6.........
  • cristianno September 2011

    Jæja kæru Blikar! Hvað er til ráða, nú hefur stuðningur við strákana verið með ágætum í síðustu tveimur leikjum þ.e á móti FRAM og KEF og uppskeran eitt stig.
    Ég held að sumir ættu nú að sjá sóma sinn í að biðja okkur, sem komu á völlinn í dag, afsökunar á þessum hörmungarleik sem fram fór í dag. Maður er eiginlega orðlaus yfir þessari frammistöðu. Það virðist engin löngun vera til staðar, engin grimmd, ekkert. Ég er yfirleitt mjög jákvæður maður, en þetta er orðið gott í ár. Nú verða menn að líta djúpt í eigin barm og girða sig hressilega. Þetta er algerlega óásættanlegt!!
    Áfram Blikar!

  • Bliki10 September 2011

    Var ekki endurgreitt stuðningsmönnum grindvíkinga í 7-2 tapinu gegn FH? Breiðablik ættu að gera hið sama enda hörmung og verra að tapa 2-6 á heimavelli á móti botnliðinu!!!
    Ég er í sjokki.

  • HlerinnHlerinn September 2011

    Já...hvað skal segja. Við vorum niðurlægðir á Ísafirði í sumar og ég hélt og leit á það sem slys. En hvernig má þetta vera. Það liggur fyrir að strákarnir okkar hafa mikla knattspyrnuhæfileika, það sáum við í fyrra. Þeir eru flestir ef ekki allir ungir að árum, en eru þó ári eldri en í fyrra og þess vegna ætti styrkur þeirra að hafa vaxið. Það virðist þó ekki vera, fótboltinn sem við sáum í kvöld var lítt skárri ef nokkuð heldur en hjá okkar ágæta liði Augnablik. Getur verið að eitthvað sé að í þjálfun og umgjörð liðsins, ég bara spyr. Þetta getur varla verið eðlilegt. Vonandi kemur stjórn knattspyrnumála og fer yfir þessa stöðu, mér finnst þetta graf alvarlegt mál sem þarf skoðunar.

    ÁFRAM BREIÐABLIK

    HLERINN

  • Aguero September 2011

    ég skammast mín hreinlega!, gæti vel verið að við verðum í 1.deild á næsta ári, einn erfiðasti útileikur ársins og sprækasta liðið í deildinni eftir, guð hjálpi okkur

  • hjorturth September 2011

    stærsta lið landsins niðurlægt 5 sigrar í 20 leikjum held að óli þurfi að fara þetta fyllir mælinn

  • bikarbliki September 2011

    afsökunar á þessum hörmungarleik sem fram fór í dag ertu eitthvað frá þér ? það er enginn að biðja þig um að koma a þennan leik svo enginn þarf að biðja einn né neinn afsköunar haha..

  • Aguero September 2011

    á okkur bara að finnast alltílagi að hafa hoft á liðið tapa 2-6? Ekki boðlegt að þjálfarinn skíti yfir stuðningsmenn liðsins og getur svo ekki unnið leik eftir það, eigum ekki skilið að vera í þessari deild miðað við þetta sumar, en vonum að við höldum okkur uppi og styrkjum liðið VEL

  • SDH September 2011

    Af hverju er Kaleekki í markinu? Ekki reyna að segja að Sigmar sé betri með fullri virðingu fyrir honum samt.

  • Tigri September 2011

    Núna fyrst þurfa Blikar á okkar stuðningi að halda. Hvet alla sem geta að skella sér á Akureyri og hina til að fylgja þeim í anda og styðja þá. Það líður engum verr með leikinn í gær en leikmönnunum sjálfum og við stuðningsmenn eigum bara að styðja þá áfram í gegnum súrt og ekki berja þá meira niður en þeir gera sjálfir. Ég hef fulla trú ennþá að þeir haldi sér í deildinni en kem til með að standa með þeim líka þótt þeir falli.

    Áfram Breiðablik!!

  • Ismadurinn September 2011

    Gefumst ekki upp þótt má móti blási. Mætum öll í ferðina til Akureyrar á sunnudaginn. Sjá heimasíðu blikar.is Nú þurfum við Blikar að standa saman!
    Ísmaðurinn

Howdy, Stranger!

It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!

Sign In Apply for Membership

Categories