Hvernig höfum við staðið okkur?
  • Turninn August 2011

    Nú fer að síga á seinni hlutann í Pepsideildinni og klárt mál að Blikaliðið hefur ekki staðið undir væntingum í sumar. Stigataflan lýgur ekki. Við erum í neðri hlutanum og Evrópusæti fjarlægur möguleiki. Eflaust eru margar skýringar á slöku gengi liðsins og væri gaman að sjá hvaða sýn menn hafa á, hvað hafi klikkað í sumar.
    Hefur knattspyrnuráð Breiðabliks brugðist, hefur þjálfarateymið ekki staðið sig, hafa leikmenn floppað eða hafa stuðningsmennirnir ekki staðið nógu þétt við bakið á liðinu? Margar spurningar, en örugglega réttmætar.
    Ég er á því að ef við byrjum á stjórninni að þá hafi verið gerð stór mistök á undirbúningstímabilinu, með því að styrkja ekki
    leikmannahópinn og sýna metnað til að gera enn betur í Evrópukeppni og í deild+ bikar. Kannski eiga orð ákveðins manns vel við hjá okkur um að " menn gera ekki kjúklingasalat úr kjúklingaskít " Það voru talaðar upp væntingar um unga stráka í hópnum og jafnvel gengið svo langt í fjölmiðlum að þeir yrðu x-faktorar. Mér finnst þetta ekki hafa gengið eftir og
    hef orðið fyrir vonbrigðum með hversu illa yngstu leikmennirnir í hópnum hafa nýtt þau tækifæri sem þeir hafa fengið í sumar. Þjálfarateyminu hefur mistekist að blása mönnum baráttuanda í brjóst og hafa virkað á mig hálf ráðalausir í sumar, við það að snúa við slöku gengi liðsins. Alltof margir leikmenn hafa síðan látið það vera að mæta til leiks í Íslandsmótinu og spilað langt, langt undir getu, með ákveðnum undantekningum þó. Ingvar Kale hefur spilað að mér finnst á pari og Kiddi S búinn að vera jafnbestur hjá okkur í allt sumar og sennilega með betri leikmönnum deildarinnar. Að mínu mati eini maðurinn sem hefur virkilega stigið upp í sumar. Kiddi Jóns, slakur. Kári, slakur. Arnór, slakur. Finnur, vonbrigði. Jökull, slakur. Gummi Kr. vonbrigði. Rafn Andri vonbrigði. Yeoman slakur. Tómas Óli vonbrigði. Arnar Már slakur. Olli slakur. Haukur, sárt saknað vegna meiðsla. Viktor U vonbrigði, lítið spilað. Þórður H slakur. Dylan sennilega skilað sínu. Elvar H sárt saknað núna, þrátt fyrir erfiða byrjun í sumar. Og hvar er Marko Pavlov?
    Stuðnigsmennirnir hafa eins verið frekar neikvæðir, allt frá byrjun móts og aldrei náð verulega dampi í sumar. Verið svona hálf grámyglulegir eins og Óli Kristjáns í flestum þeim viðtölum sem tekin hafa verið við hann í sumar. Vil að endingu ákalla sem flesta um að reyna að sameinast um að snúa gengi liðsins til betri vegar það sem eftir lifir móts. Það auðveldar heilmikið þá uppbyggingu sem við verðum að fara í fyrir næsta tímabil.
    Áfram Breiðablik.

  • Birgir August 2011

    vonum bara að bæsta tímabil verði í efstu deild!, vorum að lána besta varnarmanninn okkar frammaf áramótum, skil ekki þessi vinnubrögð

  • Turninn August 2011

    Eins og ég sannarlega samgleðst Arnóri að fá loksins tækifæri til að fara erlendis og spila knattspyrnu, þá verð ég nú samt að setja spurningarmerki við vinnubrögð stjórnarinnar.
    Óli Krisatjáns hefur sjálfur talað á þeim nótum í viðtölum í sumar að það sé eins og leikmenn hafi orðið saddir eftir Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og ekki tilbúnir í verkefnið í sumar. Þá spyr ég á móti eru það kannski þjálfarinn og stjórnin sem eru orðin södd, úr því að það er hægt að láta leikmenn fara þegar gengið er ekki betra raun ber. Ég hefði fullan skilning á ef félagið hefði verið að selja Arnór. En þar sem um lánsamning er að ræða, þá er ég kjaftstopp. Halda menn svo að það verði auðveldar fyrir okkur að safna liði
    fyrir næsta tímabil ef við verðum í fallslagnum fram að lokum móts? Maður hefði haldið að reynt yrði að styrkja hópinn og fá til liðs við okkur einhverja af þeim leikmönnum sem voru á lausu eftir sl. leiktímabil. Nei ekki aldeilis. Jóakim Önd ætlar að liggja á hverri þeirri krónu sem komið hefur í kassann vegna sölu leikmanna eins og Jóa Berg, Gylfa Sig,
    Alfreðs og Elfars Freys. Eitt er að sýna ráðsemi í peningamálum en það getur á móti hlotist af mikil skaði ef þetta verður gert á kostnað árangurs.

  • RitzenhoofRitzenhoof August 2011

    Turninn hefur lög að mæla, flott grein hjá honum. Allir þurfa að líta í eigin barm og finna leið til að gera mun betur á næstu leiktíð. Stjórn, þjálfarar, leikmenn,stuðningsmenn.
    Ingvar og Kiddi hafa verið góðir í sumar en mér finnst ekki sanngjarnt að segja að Kiddi Jóns hafi verið slakur og ekki heldur Gummi Kri, þeir hafa verið misjafnir en líka sýnt snilldartakta inn á milli. Aðrir eru af einhverjum ástæðum töluvert frá sínu besta. En eins og bent hefur verið á er þetta bara ósköp venjulegt síson hjá Blikum, séð í sögulegu samhengi. Mér er persónulega alveg sama þó við séum ekki meistarar á hverju ári, annaðhvort ár er allt í lagi... til að byrja með.
    En þessi knattspyrnudeild hlýtur að standa nokkuð vel hvað skotsilfur snertir, eftir það sem á undan er gengið. Það þurfa allir að taka vel á því núna, klára tímabilið með stæl. Koma svo 2012 og rúlla þessu upp, aftur. Við getum það og höfum gert það.
    Áfram BREIÐABLIK

  • Hlemmurinn August 2011

    Hlemmurinn

    Hefði mönnum dottið í hug 2009 og 2010 að lána lykilleikmann í neðri deild í Noregi þegar mikið er eftir af deildinni. Svarið er nei !!!! Hvað hefur þá breyst !!! Er það kannski "Metnaðarleysi". Jóakim Önd klórar sér á kviðnum og segir "þetta reddast einhvernveginn". Vona að Þjálfarar og Leikmannahópurinn bjargi andliti félagsins 2011 því Stjórnin er búin að "gera upp á bak". Að fara í neðri deild í Noregi er ekki að fara í "Atvinnumennsku" , það er óþolinmæði á háu stigi.
    Áfram BREIÐABLIK

  • Grelli August 2011

    Ég hel góðir Blikar að þið ættuð ekki að vera að hrauna yfir leikmenn eða stjórn. Það voru allir til í að taka þátt í fjörinu fyrir ári síðan en svo ef það geingur ekki alveg nógu vel þá eru menn fljótir að yfirgefa skútuna og byrja að rífa niður frekar en að mæta í stúkuna og láta heira í sér, það heyrðist í ÍBV stuðningsmönnum og það var eins og við værum í eyjum en ekki á Kópavogsvelli strákar og stelpur þetta er nú bara algjört grín að koma svo hérna og hrauna yfir menn sem vinna að heilindum og í sjálboðavinnu. Ekki gleima því að það kostar að reka svona knattspyrnudeild og held ég að menn ættu að mæta þar á fundi og sjá í kvað allar þessar peningatöskur :) fara í. Þið vitið ekki neit hvernig samning hver og einn leikmaður er með og stundum er erfitt að og ekki hægt að binda leikmenn hjá félaginu, ekki væri betra að seiga nei og hafa leikmann hjá félagin sem kærir sig ekki um að vera þar það yrði lítið gagn í honum. Nú klárum við þetta tímabil bæði í stúkuni og á vellinum með sæmd og notum þá leikmenn sem við erum með, sem eru flottir leikmenn. Það kemur annað tímabil þar sem við munum koma sterkir til baka.
    Áfram Breiðablik
    Kv. Grelli

Howdy, Stranger!

It looks like you're new here. If you want to get involved, click one of these buttons!

Sign In Apply for Membership

Categories