BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Viltu vinna helgarferð fyrir tvo til Evrópu?

21.01.2015

Þá er Getraunaleikur Breiðabliks svarið!

Þann 24. janúar fer í gang getraunaleikur Breiðabliks. Heildarverðmæti vinninga er um 500.000 kr.  Auk þess eiga þeir sem senda seðlana sína áfram í getraunakerfi Íslenskrar Getspár möguleika á að vinna milljónir í viku hverri.

1 verðlaun: Helgarferð fyrir 2 til Evrópu til einhvers af áfangastöðum Icelandair.

2 verðlaun: Gisting fyrir 2 á Hótel Búðum ásamt morgunverði.

3 verðlaun: Gjafabréf fyrir 2 á Veitingastaðinn UNO í Reykjavík

Vikulega vinnur besta liðið veglegan aukavinning

Það getur ekki verið auðveldara að taka þátt, farið inn á www.tippleikur.is veljið Breiðablik og skráið lið til leiks - Í hverju liði eru mest tveir en allar reglur er að finna á vefnum.  Verð fyrir hvern hóp er 6.000 kr.

Einnig er hægt að líta við í getraunakaffi félagsins í Smáranum á laugardögum milli kl. 10-12  og skrá sig og fá allar upplýsingar og leiðbeiningar.

Til baka