BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Svava Rós í Breiðablik

20.01.2015

Hin unga og efnilega Svava Rós Guðmundsdóttir skrifaði í dag undir þriggja ára samning við meistaraflokk kvenna. Svava Rós sem er sóknarmaður verður tvítug á árinu og hefur leikið 25 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim níu mörk. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún leikið 59 leiki í efstu deild fyrir Val og er öflug viðbót við hið efnilega lið Blika.

Breiðablik væntir mikils af þessum liðsstyrk og býður Svövu Rós velkomna til félagsins. 

Til baka