BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

María Rós í Selfoss

13.05.2015

María Rós Arngrímsdóttir hefur gengið til liðs við Selfoss.
María hefur verið á mála hjá Blikum síðan árið 2011 og spilað 40 leiki í efstu deild með liðinu.  Á ferli sínum hefur María einnig leikið með Val, Grindavík, Fram og Aftureldingu. 
María er fædd árið 1990 en hún hóf meistaraflokksferil sinn með Val árið 2006. 

Við Blikar þökkum Maríu  fyrir allan þennan tíma og vonum að henni gangi vel fyrir austan.

Til baka