BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Margrét Lea Gísladóttir skrifar undir

05.05.2021 image

Margrét Lea hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Margrét Lea verður 16 ára í júlí á þessu ári. Hún er sóknarsinnaður leikmaður sem leikur oft fremst á miðjunni. Hún er leikin með boltann og hefur gott auga fyrir spili. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Margrét Lea þegar leikið 20 meistaraflokksleiki með Augnablik og skorað í þeim 5 mörk.

Það verður spennandi að fylgjast með Margréti Leu halda áfram að þróa sinn leik.

Til hamingju með samninginn.

Til baka