BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Hlín Gunnlaugsdóttir til HK/Víkings

13.12.2014

Hlín Gunnlaugsdóttir hefur ákveðið að söðla um og er nú gengin til liðs við HK/Víking í 1.deild kvenna í knattspyrnu.

Hlín á að baki 214 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 22 mörk. Hún er uppalin Bliki og hefur gengt stóru hlutverki hjá meistaraflokki kvenna undanfarin ár. Um mitt tímabil í sumar fór Hlín að láni til HK/Víkings og hefur nú gengið frá endanlegum vistaskiptum.

Breiðablik þakkar Hlín fyrir frábært framlag sitt til félagsins og óskar henni velfarnaðar á nýjum slóðum.
Um leið vonumst við til þess að sjá Hlín aftur í búningi Breiðabliks í framtíðinni. 

Til baka