BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Guðrún Arnars skrifar undir nýjan 3ja ára samning við Breiðablik

04.11.2014

Varnarmaðurinn efnilegi, Guðrún Arnardóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir til þriggja ára. Guðrún gekk til liðs við Breiðablik árið 2011 og hefur alls leikið 58 leiki og skorað í þeim 6 mörk. Hún var lykilmaður hjá okkur í öflugri vörn sem hélt hreinu í alls 11 leikjum í sumar. Auk leikja með okkur Blikum hefur Guðrún verið lykilmaður í yngri landsliðum Íslands og er farin að banka hraustlega á dyrnar í A landsliðinu. Það er okkur Blikum mikið ánægjuefni að tilkynna um þennan samning enda Guðrún mikilvægur hlekkur í þeim áformum okkar að gera alvöru atlögu í að fá Íslandsbikarinn heim.

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Til baka