BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Getraunaleikur Breiðabliks hefst þann 30. janúar 2016

18.01.2016
Þann 30. janúar 2016 ætlum við að byrja getraunaleik Breiðabliks.  
Eins og áður verða flottir vinningar í boði en heildarverðmæti vinninga er um 500.000 kr.  Auk þess eiga þeir sem senda seðlana sína alla leið áfram í getraunakerfi Íslenskra Getspár möguleika á að vinna milljónir í hverrir viku.
 
1. Verðlaun:  Helgarferð fyrir 2 til Evrópu til einhvers af áfangastöðum Icelandair.
2. Verðlaun:  Gisting fyrir 2 í Deluxe herbergi á Hótel Rangá ásamt morgunmat.
3. Verðlaun:  Óvissuferð fyrir tvo á Uno með öllu.
 
Vikulega vinnur svo besta liðið veglegan aukavinning.
 
Verð fyrir hvert lið er eins og áður 6.000 kr. og er hægt að millifæra með nafn liðs sem er greitt fyrir í skýringu.  Einnig verður hægt að koma og greiða hjá okkur næsta laugardag í getraunakaffinu milli 10 og 12.
 
Millifæra á þennan reikning:
 
0130-26-42000
410284-1389
 
Fyrir þá sem eru ekki þegar með lið í leiknum geta skráð sig hér -> Nýskráning
 
Leikreglur má svo finna hér -> Leikreglur
 
kveðja.
Getraunanefndin.

Til baka