Fjolla Shala skrifar undir nýjan 3 ára samning við Breiðablik
06.11.2014Fjolla Shala skrifaði í gær undir nýjan 3 ára samning við Breiðablik. Fjolla er nagli eins og við Blikar vitum en hún kom til okkar árið 2011 og hefur leikið með okkur 43 leiki í deild og bikar. Alls á hún 100 leiki í meistaraflokki 51 með Fylki og 6 með Leikni í fyrstu deild. Hún á einnig fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands. Fjolla hefur staðið sig afar vel í græna búningnum frá því að hún kom til Breiðabliks og verið lykilmaður í okkar liði. Það er okkur sérstakt ánægjuefni að vera búin að tryggja félaginu krafta hennar næstu þrjú árin.