BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Esther Rós Arnarsdóttir lánuð til ÍBV

13.05.2015

Breiðablik hefur lánað Esther Rós Arnarsdóttur, leikmann mfl. kvk, yfir í ÍBV fyrir komandi tímabil.

Esther Rós sem verður 18 ára gömul á árinu hefur verið lykilmaður í sigursælum yngri flokkum Breiðabliks.

Hún hefur spilað 9 leiki í Pepsí deildinni með Breiðablik og á að baki 28 leiki með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim 15 mörk.

Til baka