Blikastelpur komnar í úrslit í Lengjubikarnum
26.04.2015Blikastelpur tóku á móti Þór/KA í undanúrslitum Lengjubikarsins á laugardaginn. Byrjunarlið Blika var þannig skipað: Sonný í marki, Fjolla, Guðrún, Ingibjörg og Arna Dís í vörninni, Jóna, Rakel og Andrea á miðjunni, Svava og Aldís á köntunum og Fanndís uppi á toppi.
Þetta var annar leikurinn við Þór/KA á stuttum tíma en fyrri leikurinn sem var í riðlakeppninni endaði með 3-2 sigri Blika.
Leikurinn einkenndist af mikilli stöðubaráttu fyrstu 20 mínúturnar en eftir það tóku Blikar öll völd á vellinum. Blikar sóttu stíft og áttu nokkrar mjög hættulegar sóknir áður en Rakel Hönnudóttir brunaði upp miðjuna á 40. mínútu og átti flotta stungusendingu inn fyrir vörn gestanna þar sem Svava Rós renndi sér á eftir boltanum og setti hann fram hjá Roxanne í markinu.
Staðan í hálfleik var 1 – 0 fyrir Blika.
Seinni hálfleikurinn hófst eins og sá fyrri endaði þar sem Blikar voru mun betri. Á 62. mínútu leiksins prjónaði Aldís Kara sig glæsilega í gegnum vörnina, Messi style, en Roxanne varði vel frá henni. Boltinn barst þó til Blika og endaði hjá Rakel Hönnudóttur sem var stödd rétt fyrir utan vítateig og hamraði boltann inn, glæsilegt mark.
Blikar gerðu þrjár skiptingar í seinni hálfleik, Thelma kom inn fyrir Svövu á 70. mínútu, Esther inn fyrir Rakel á 85. mínútu og Elena inn fyrir Aldísi á 87. mínútu.
Á 86. Mínútu leiksins brunaði svo Aldís upp vinstri kantinn og renndi boltanum fyrir þar sem Telma Hjaltalín kom á ferðinni og setti boltann inn af öryggi.
Blikar fóru því örugglega í úrslitaleikinn eftir 3 -0 sigur á Þór/KA og líta stelpurnar mjög sannfærandi út þessa stundina.
Stelpurnar mæta svo sterku liði Stjörnunnar, sem vann Selfoss 4 -1 eftir vítaspyrnukeppni í hinum undanúrslitaleiknum, í úrslitaleik á fimmtudaginn kl. 20:15. Leikurinn fer fram í Kórnum og um að gera að fjölmenna og styðja stelpurnar.
Blikar eiga því möguleika á að verða meistarar bæði í karla og kvenna flokki þar sem strákarnir urðu Lengjubikars-meistarar á sumardaginn fyrsta.