BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Blikar eru meistarar meistaranna

05.05.2016

Sonný Lára Þráinsdóttir var hetja Breiðabliks sem vann í kvöld leikinn um hver væri meistarar meistaranna þar sem Íslandsmeistarar Breiðabliks mættu Borgunarbikarmeisturunum Stjörnunnar. 

Ekkert mark kom í venjulegum leiktíma við heldur vindasamar aðstæður á Samsung-vellinum í Garðabæ og var farið beint í vítaspyrnukeppni. 

Sonný Lára Þráinsdóttir var þar hetja Íslandsmeistaranna en hún varði tvær vítaspyrnu sem tryggðu Blikum sigurinn. 

Pepsi-deild kvenna fer af stað í komandi viku en fjórir leikir eru á miðvikudaginn og einn á laugardag.

Til baka